
Að leggjast með hundum
Talið er að í Bretlandi búi nú um 500.000 manns sem tilheyra Windrush-kynslóðinni. Er um að ræða fólk á eftirlaunaaldri sem kom til landsins sem börn í fylgd með foreldrum sínum og ól aldur sinn í Bretlandi.
Þær eru kaldar kveðjurnar sem þessi hópur fær frá breskum stjórnvöldum nú, sjötíu árum eftir að Empire Windrush kom að landi. Fjölda fólks hefur verið tjáð að það sé ólöglegir innflytjendur. Afleiðingarnar eru grimmilegar; líf fólks umturnast, það er rekið úr vinnu, missir bætur og húsnæði, því er neitað um heilbrigðisþjónustu og er sent í innflytjendabúðir. Einhverjir kunna að hafa verið fluttir nauðugir úr landi.
Þegar raunir Windrush-kynslóðarinnar komust fyrst í fréttirnar sýndi forsætisráðherra Breta, Theresa May, af sér staðalviðbrögð samtíma stjórnmálamannsins: Hún neitaði að ræða við leiðtoga ríkja Karíbahafsins eins og hún bæri ekki nokkra sök á máli.
Enginn sem tilheyrir Windrush-kynslóðinni er ólöglegur innflytjandi. Árið 1971 var hópnum veitt varanlegt dvalarleyfi í Bretlandi. Það er hins vegar samdóma álit að Theresa May beri ábyrgð á þeirri hrottalegu meðferð sem Windrush-kynslóðin sætir nú.
Það var í tíð May sem innanríkisráðherra að innflytjendalögum var breytt. Allir sem sækja um starf í Bretlandi, leigja húsnæði og leita til heilbrigðisþjónustunnar þurfa nú að sanna með tilskildum pappírum að þeir séu ekki ólöglegir innflytjendur. May stærði sig af því að með breytingunni skapaði hún svo „fjandsamlegar aðstæður“ fyrir þá sem ekki gátu ávísað pappírum að þeir hrökkluðust burt. Nýja innflytjendastefnan kom einkar illa við Windrush-kynslóðina. Því þótt kynslóðin sé jafnbresk og „fish and chips“ fékk stór hluti hennar aldrei afhenta nokkra opinbera pappíra þar um.
Grafið undan dómskerfinu
Á Alþingi Íslendinga hafa staðið yfir umræður um frumvarp Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra um stofnun nýs dómstóls, Endurupptökudóms. Gerir frumvarpið ráð fyrir nokkru meira svigrúmi dómsmálaráðherra til að hafa áhrif á val dómara í dómstólinn en venja er. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, gerði athugasemd við fyrirkomulagið. Sagðist hann ekki treysta dómsmálaráðherra „til þess að setja dómstig eða skipa dómara“. Vísaði hann til þess er Sigríður Andersen braut stjórnsýslulög við skipan dómara í Landsrétt.
Sigríður brást ókvæða við athugasemdunum. Sakaði hún Píratann um að grafa undan dómskerfinu með slíku tali.
Ekki benda á mig
Í kjölfar þess að þjáningar Windrush-kynslóðarinnar komu upp á yfirborðið hélt þingmaðurinn David Lammy þrumuræðu á þingi. Kenndi hann um hinum „fjandsamlegu aðstæðum“ sem May skapaði hvernig komið var. „Við skulum kalla hlutina réttum nöfnum,“ sagði Lammy. „Leggist maður með hundum fær maður flær – þetta er það sem öfga-hægri málflutningur hefur leitt af sér í þessu landi.“
Rétt eins og Theresa May segir Sigríður Andersen: Ekki benda á mig. Það er fjarstæðukennt að þurfa að benda á hið augljósa. En hér kemur það: Leggist maður með hundum fær maður flær. Ráðherra sem veður um ráðuneyti sitt á skítugum skónum ber ábyrgð á því þegar gólfið verður útbíað. Það er ekki barnið sem bendir á að keisarinn sé ekki í neinum fötum sem ber ábyrgð á nekt keisarans. Sé íslenskt dómskerfi rúið trausti er engum öðrum um að kenna en dómsmálaráðherra sem sýnir af sér valdhroka, valdníðslu og fremur embættisbrot.
Theresa May baðst að endingu afsökunar. Það hefur Sigríður Andersen enn ekki gert.
Skoðun

Sigrar og raunir íslenska hestsins
Elín Íris Fanndal skrifar

Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina
Heimir Már Pétursson skrifar

Góðir grannar Landsvirkjunar og við hin
Kjartan Ágústsson skrifar

Hittumst á rauðum sokkum 1. maí
Finnbjörn A. Hermannsson,Kolbrún Halldórsdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Mikilvægi orkuspáa
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Þegar innflutningurinn ræður ríkjum
Anton Guðmundsson skrifar

Vladímír Pútín: Hvað er að marka hann?
Steinar Björgvinsson skrifar

Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Vegamál á tímum skattahækkana og vantrausts
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Konur og menntun
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki
Hópur stjórnarkvenna í Solaris skrifar

Hanna Katrín og Co, koma til bjargar
Björn Ólafsson skrifar

Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu
Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar