Silja Jóhannesdóttir leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum.

Samfylkingin á landsvísu stendur fyrir jafnrétti, jöfn tækifæri og almannahag fyrst og fremst. Áherslumál okkar taka mið af þeirri stefnu og við munum ávallt standa upprétt í baráttunni fyrir þeim gildum sem við trúum á og teljum samfélaginu fyrir bestu. Stefnumál okkar í heild sinni má finna á vefsíðu okkar.
Hvalvík á Melrakkasléttu og höfnin á Húsavík eru ótrúlega fallegir staðir en við erum svo heppin að landið okkar er það fallegt að það er verulega erfitt að velja einn stað svo ég læt þetta duga.
Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag)
Á eyrinni á Akureyri.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Grillað lambafille.
Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda?
Pasta með piparostasósu og „klárum það sem er í ísskápnum“ þema.
Uppáhalds „guilty pleasure“ lag?
Single ladies.
Þegar ég ruglaði saman Össuri Skarphéðins og Kristjáni Möller í fyrsta skipti sem ég hitti annan af þeim.
Draumaferðalagið?
Langar eiginlega allt en er búin að bíða lengi eftir borgarferð með systur minni svo það er líklega draumaferðalagið akkúrat núna.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já, það er svo miklu skemmtilegra að trúa því.
Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í?
Vinnufélagar á Hagstofunni pökkuðu einu sinni allri skrifstofunni minni inn í dagblaðapappír. Var að finna innpakkaða hluti í marga daga á eftir. Afar metnaðarfullt og hresst.
Hundar eða kettir?
Kettir alla daga. Á einn snilling sem heitir Gimli í höfuðið á dvergnum í Hringadróttinssögu.
Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd?
Expendables.
Hugh Laurie.
Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju?
Tröllaættinni, er ekki ein slík? Þyki ekki mjög dömuleg og myndi örugglega finna mig vel með þeim.
Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni?
Já.
Uppáhalds tónlistarmaður?
Emilíana Torrini.
Uppáhalds bókin?
The Bell jar hreyfði mikið við mér en Læknamafían eftir Auði Haralds hefur verið lesin afar oft.
Uppáhalds föstudagsdrykkur?
Einstök White Ale í góðra fólks hópi.
Uppáhalds þynnkumatur?
Heimalagaður borgari.
Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning?
Bæði menning reyndar en ég er meira í að skoða fólkið og húsin en að flatmaga á strönd. Geri mitt besta líka í að finna góðan lókal latte allsstaðar.
Hefur þú pissað í sundlaug?
Jább.. ekki nýlega reyndar.
Hvaða lag kemur þér í gírinn?
Breiðholtsbúggí.
Örugglega en man ekkert í svipinn.
Á að banna flugelda?
Nei en það á að takmarka þá en ekki fyrr en búið er að tryggja björgunarsveitum tekjuflæði annars staðar frá.
Hvaða landsliðsmanneskja í knattspyrnu værir þú og af hverju?
Ég væri vatnsberi, er ekki einhver í því? Læt aðrar um að sparka í tuðruna.
Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu bauðst að taka þátt.