Nær dauða en lífi eftir bit dauðs skröltorms Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. júní 2018 07:22 Skröltormar geta bitið frá sér löngu eftir að afhöfðun.
Sprauta þurfti 26 skömmtum af mótefni í Texasbúa eftir að hann var bitinn af höfði skröltorms í liðinni viku. Eiginkona mannsins segir í samtali við fjölmiðla ytra að hann hafi verið að brasa í garði þeirra hjóna þegar hann kom auga á dýrið, sem sagt er hafa verið rúmur metri að lengd. Maðurinn gerði sér lítið fyrir og afhöfðaði skröltorminn. Engu að síður tókst höfði dýrsins að glefsa til mannsins - eftir að búið var að fjarlægja það af skrokknum. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að það sé ekki óalgengt að skröltormar býi frá sér að dýrið hefur verið afhöfðað. Skömmu eftir bitið á maðurinn að hafa fengið alvarleg krampaköst og var hann fluttur með þyrlu á sjúkrahús. Þar hefur hann dvalið í meira en viku og fengið á þriðja tug skammta af mótefni sem fyrr segir. Ástand hans er sagt vera stöðugt en að nýru mannsins séu illa leikin eftir eitrunina. Haft er eftir eitrunarsérfræðingi að það sé ekki ráðlagt að afhöfða eitruð dýr með þessum hætti. Ekki aðeins sé það ómannúðlegt heldur kunna báðir hlutar dýrsins að vera eitraðir eftir afhöfðunina.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Innlent „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Innlent Tveir „galdramenn“ í haldi Innlent Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Erlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Innlent Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Innlent Fleiri fréttir Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Ísraelsher réðst á sjúkrahús Síðasti stjórnarandstöðuflokkur Hong Kong verður leystur upp Biðja Trump um að sýna hörku vegna vatnsdeilna við Mexíkó Tugir sagðir liggja í valnum eftir eldflaugaárás á Sumy Réðust á síðasta starfandi sjúkrahúsið í Gasaborg Fundi Bandaríkjanna og Íran lýst sem „uppbyggilegum“ Ætla í „öfluga“ yfirtöku á Gasaströndinni Snjallsímar undanskildir tollunum Létt fólk hvatt til að halda sig innandyra til að fjúka ekki Menendez bræðurnir nær frelsinu Skjótasta leiðin að friði að verða við kröfum Rússa Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Sjá meira