Meirihluti stjórnar HB Granda ákvað á fundi í dag að ganga til samninga við Vilhjálm Vilhjálmsson, forstjóra, um starfslok hans hjá félaginu. Á sama fundi ákvað stjórn að ráða Guðmund Kristjánsson, núverandi stjórnarformann félagsins, sem forstjóra.
Í kjölfarið skipti stjórn með sér verkum á ný og var Magnús Gústafsson kjörinn nýr stjórnarformaður. Þetta kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallar.
Guðmundur er forstjóri útferðarfélagsins Brims og keypti hann nýverið 34,1 prósent eignarhlut Kristjáns Loftssonar og Halldórs Teitssonar í HB Granda.
Vilhjálmur hættir sem forstjóri HB Granda og Guðmundur tekur við

Tengdar fréttir

HB Grandi hagnaðist um 405 milljónir á fyrsta ársfjórðungi
Fyrirtækið frysti einungis 1.265 tonn af loðnuhrognum á tímabilinu en þau voru 3.736 á sama tímabili í fyrra.

Brim gerir hluthöfum HB Granda kauptilboð
Brim keypti í byrjun mánaðarins alls 34 prósent hlutafjár HB Granda á tæplega 21,7 milljarða króna.

Lán til Brims nálgast lögboðið hámark
Skuldbinding útgerðarfélagsins Brims gagnvart Landsbankanum nálgast 25 prósent af eiginfjárgrunni bankans. Ákveði minni hluthafar HB Granda að taka yfirtökutilboðinu þarf Brim að leita annað eftir fjármögnun.