

Eftiráspeki
Frá því var greint í Markaðnum í vikunni, byggt á minnisblaði Bankasýslunnar, að stofnunin hefði krafist þess í desember að innri endurskoðanda Arion banka yrði falið að gera formlega athugun á sölu bankans á hlut sínum í Bakkavör. Meirihluti stjórnar hafnaði þeirri tillögu. Bendir Bankasýslan á að ríkissjóður hafi farið á mis við um 2,6 milljarða ef verðmæti hlutarins sem bankinn seldi í janúar 2016 hefði verið það sama og það var við hlutafjárútboð Bakkavarar í nóvember 2017. Þá hafi ekki verið „ljóst hversu opið ferlið var“, að sögn Bankasýslunnar, og því „vakni upp sömu spurningar og í Borgunarmálinu“, segir í minnisblaðinu.
Þótt það sé eðlilegt að Bankasýslan kalli eftir upplýsingum um söluna, einkum til að tryggja að hún hafi verið í samræmi við eigendastefnu ríkisins, þá virðist samanburður við Borgunarmálið í besta falli vera langsóttur. Stærstu mistök stjórnenda Landsbankans voru ekki endilega þau að hafa ekki boðið út 31 prósents hlut sinn í Borgun í opnu söluferli, enda þótt slíkt fyrirkomulag hefði verið heppilegra, heldur fremur að hafa yfirsést þau miklu verðmæti sem myndu fyrirsjáanlega falla í skaut Borgunar við kaup Visa Inc. á Visa Europe. Það fúsk kostaði bankann háar fjárhæðir. Sömu sjónarmið eiga tæpast við í tilfelli sölunnar í Bakkavör.
Arion banki og lífeyrissjóðirnir voru í aðþrengdri stöðu þegar ákveðið var 2015 að fá Barclays til að sjá um söluna. Bankinn var undir þrýstingi frá FME um að selja sem fyrst eignarhluti sína í óskyldum rekstri og sá möguleiki að ætla að bíða og losa um hlutinn við skráningu á markað var með öllu óraunhæfur. Bakkavararbræður voru óneitanlega í yfirburðastöðu gagnvart öðrum fjárfestum þegar söluferlið hófst, bæði vegna sérstakra skilmála í hluthafasamkomulagi félagsins og þá þekktu fáir betur til reksturs Bakkavarar, og því kom það engum á óvart að þeir áttu hæsta skuldbindandi tilboðið á meðal þeirra sem bitust um hlutinn og tryggðu sér þannig yfirráð í fyrirtækinu. Í kjölfarið var hlutafé Bakkavarar aukið og skuldir lækkaðar umtalsvert. Þær ráðstafanir réðu hvað mestu um að afkoman batnaði til muna og þá um leið hækkaði virði félagsins verulega.
Var verðið of lágt sem Arion banki og lífeyrissjóðirnir fengu fyrir hlut sinn í Bakkavör? Um það er ómögulegt að fullyrða. Fyrir liggur þó að sumir fjárfestar, meðal annars LSR, tóku þá ákvörðun þremur árum áður – sem reyndist eftir á að hyggja röng – að selja í Bakkavör á verði sem var aðeins um fimmtungur af því sem Arion fékk í sinn hlut. En það voru ekki einungis Íslendingar sem seldu hluti sína til Bakkavararbræðra í ársbyrjun 2016 heldur einnig sjóðurinn Davidson Kempner. Er líklegt að vogunarsjóður á Wall Street hafi leyft þeim bræðrum að snuða sig í slíkum viðskiptum? Það væri þá að minnsta kosti saga til næsta bæjar.
Skoðun

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar