
Afskriftir með leynd
Uppspretta vandans 2008 var hömluleysi sem fékk menn til að vanrækja og jafnvel rífa niður þær varnir sem reistar höfðu verið til hagsbóta fyrir almenning í heimskreppunni 1929-1939. Að vísu tókst með naumindum að girða fyrir nýja heimskreppu 2008 með þeim ráðum sem fundin voru upp í kreppunni miklu. Eigi að síður leiddu bankahremmingarnar 2008 af sér djúpa efnahagslægð sem öllum þjóðum öðrum en Grikkjum hefur nú tekizt að rífa sig upp úr við illan leik. Tjónið var mikið. Milljónir manna misstu vinnuna, heimili sín og sparifé. Bankastjórnendur mökuðu flestir krókinn. Margir reyndir bankamenn eiga von á öðrum skelli innan tíðar.
Þótt betur færi að endingu en á horfðist í upphafi gerðu stjórnvöld víðast hvar eina reginskyssu. Þau reistu skjaldborg um banka án þess að setja bankastjórnendum stólinn fyrir dyrnar, skipta þeim út, fangelsa þá og sekta sem brutu lög eins og gert var í Japan í fjármálakreppunni þar 1992-1997.
Tölurnar eru svolítið á reiki eftir því hvernig brot bankastjórnenda eru skilgreind. Financial Times greindi nýlega frá því að 47 bankastjórnendur hafi fengið fangelsisdóma fyrir brot tengd fjármálakreppunni, þar af 25 á Íslandi, 11 á Spáni og sjö á Írlandi. Engum sögum fer af sektum, eignaupptöku eða eftirlaunasviptingu líkt og gert var í Japan. Margir bankastjórnendur hafa því væntanlega horfið vonglaðir til misvel fenginna auðæva sinna að lokinni afplánun.
Svik samábyrgðarinnar
Bankamál á Íslandi hafa verið í ólestri svo lengi sem elztu menn muna. Um þetta vitna ýmsar skráðar heimildir frá fyrri tíð en einkum þó æpandi þögnin um það sem vitað var. Vert er að rifja upp einu sinni enn ummæli Péturs Benediktssonar, síðar bankastjóra Landsbanka Íslands 1956-1969, um Landsbankann og Útvegsbankann í bréfi til Bjarna bróður hans, síðar forsætisráðherra, 12. marz 1934. Þar segir Pétur: „Fer ekki að koma að því, að tímabært sé að breyta þeim báðum í fangelsi og hleypa engum út, nema hann geti með skýrum rökum fært sönnur á sakleysi sitt?“ Bjarni svarar 22. marz: „Hætt er við að enn séu ekki öll kurl komin til grafar um þá fjármálaóreiðu og hreina glæpastarfsemi, sem nú tíðkast í landinu ... Er þó það, sem þegar er vitað, ærið nóg. Bersýnilegt er, að þjóðlífið er sjúkt. Kemur það ekki einungis fram í svikunum sjálfum, heldur einnig því, að raunverulega „indignation“ er hvergi að finna hjá ráðandi mönnum, persónuleg vild eða óvild og stjórnmálahagsmunir ráða öllu, á báða bóga, um hver afstaða er tekin. Slíkt fær ekki staðizt til lengdar. Dagar linkindarinnar og svika samábyrgðarinnar hljóta að fara að styttast.“ Um daginn blandaði forsætisráðherra sér í málið og sagðist ekki vera „hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklingshyggju og einstaklingsvæðingar stjórnmálanna.“
Misnotkun bankaleyndar
Stóru bankarnir þrír voru í reyndinni flokksbankar, tveir þeirra jafnvel fram yfir einkavæðingu 1998-2003 og a.m.k. annar þeirra alveg fram að hruni. Stjórnmálamenn og flokkar misnotuðu bankana miskunnarlaust frá fyrstu tíð til að hygla sér og sínum, ýmist með sjálfvirkum lánveitingum eða afskriftum sem haldið var leyndum fyrir almenningi. Gömlu ríkisbankarnir voru að heita má sjálfsafgreiðslustofnanir handa forgangsatvinnuvegunum og öðrum velunnurum. Útvegsbankinn var á endanum keyrður út á yztu nöf 1985, en það ár tapaði bankinn meira en 80% af eigin fé sínu á viðskiptum við eitt fyrirtæki og sátu virðingarmenn Sjálfstæðisflokksins báðum megin við borðið. Var einum þeirra svo seldur Landsbankinn nokkrum árum síðar og var sá banki þá einnig keyrður í kaf og bankakerfið allt eins og það lagði sig 2008.
Alþingi samþykkti eftir dúk og disk 7. nóvember 2012 að láta rannsaka einkavæðingu bankanna. Aðeins einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins greiddi ályktuninni atkvæði sitt, dr. Pétur H. Blöndal sem nú er látinn, og enginn þingmaður Framsóknarflokksins. Þingið hefur ekki enn látið þessa rannsókn fara fram og hefur með því móti tryggt að meintar sakir í tengslum við einkavæðinguna eru fyrndar. Með líku lagi hafa sumar meintar sakir bankastjórnenda og annarra fyrir og eftir hrun ekki sætt rannsókn og hafa verið látnar fyrnast, þar á meðal vísbendingar um innherjaviðskipti í miðju hruni. Innherjaviðskipti eru saknæm vegna þeirrar mismununar sem í þeim felst. Grunur leikur einnig á mismunun við afskriftir bankanna eftir hrun þar eð afskriftum er haldið leyndum með vafasamri skírskotun til bankaleyndar.
Leynilegar afskriftir bjóða hættunni heim. Bankaleynd var aldrei ætlað að auðvelda bankarán innan frá. Til að girða fyrir misnotkun og efla traust þarf að birta upplýsingar um afskriftir og önnur bankamál sem fólkið í landinu varðar um.
Skoðun

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar