

Með hælana í fortíðinni
1876: „Vel má vera að Ameríkanar hafi þörf fyrir síma en ekki við. Við eigum nóg af sendisveinum.“ – William Preece, starfsmaður Breska póstsins.
1903: „Hesturinn er kominn til að vera en bifreiðin er ekkert annað en stundardella – tískufyrirbrigði.“ – Forstjóri Sparisjóðs Michigan sem ráðlagði viðskiptavini frá því að fjárfesta í bílaframleiðandanum Ford.
1943: „Ég tel að stærð tölvumarkaðarins á heimsvísu sé fimm tölvur.“ – Thomas Watson, forstjóri IBM.
1946: „Sjónvarpið mun ekki halda markaðshlutdeild neins staðar lengur en í sex mánuði. Fólk mun fá nóg af því að sitja og glápa á kassa úr krossviði hvert einasta kvöld.“ – Darryl Zanuck, yfirmaður kvikmyndaframleiðandans 20th Century Fox.
1964: „Eldhús munu senn útbúa mat sjálfkrafa.“ – Isaac Asimov, rithöfundur.
1981: „Farsímar munu svo sannarlega ekki leysa landlínuna af hólmi.“ – Marty Cooper, uppfinningamaður.
2007: „Það er ekki nokkur leið að iPhone-inn nái nokkurri markaðshlutdeild.“ – Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft.
Áramót. Við stöndum með hælana skorðaða í fortíðinni en teygjum tærnar varfærin inn í framtíðina. Hvað skyldi leynast handan hornsins? Er við stígum inn í árið 2019 virðast margir leita framtíðarinnar í fortíðinni. Hinn 29. mars 2019 mun Bretland ganga úr Evrópusambandinu en rúm tvö ár eru liðin frá því að Bretar kusu burt pólska pípara í þjóðaratkvæðagreiðslu í von um að endurvekja tímann þegar konur gengu í síðkjólum, karlmenn skörtuðu pípuhöttum og meðfæddum yfirburðum, fólk bjó í krúttlegum kotum með stráþökum, Doc Martin sótti sjúklinga heim, stórspæjararnir Morse og Poirot gættu öryggis fólks og Hyacinth Bucket bar fram te. Donald Trump berst enn fyrir því að skilja Bandaríkin frá samtímanum og umheiminum með vegg jafnlöngum færiböndunum í Ford-verksmiðjunni á þeim tímum þegar karlar störfuðu blístrandi við að púsla saman framtíðinni en skildu hana svo eftir í vinnunni og fóru heim til brosandi eiginkvenna með svuntu, rúllur í hárinu og steik á diski. Við Íslendingar höfum horfið aftur til þeirrar hefðar að sama hvaða flokkar eru í ríkisstjórn er Sjálfstæðisflokkurinn alltaf við völd. Hann er eins og heilög þrenning – faðirinn, sonurinn og heilagur andi; flokkurinn, kolkrabbinn og fjölskyldurnar fjórtán – því hans er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. En á meðan við reynum að endurvekja ímyndaða fortíð með jafngóðum árangri og Frankenstein skapaði skrímsli brestur framtíðin á.
2030: Samkvæmt skýrslu sem birt var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál fyrr á árinu eru aðeins tólf ár til stefnu ef koma á í veg fyrir óafturkræf áhrif á lífríki jarðarinnar vegna loftslagsbreytinga á borð við eyðingu kóralrifja, mikla þurrka, flóð og matarskort fyrir hundruð milljóna manna.
2050: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint sýklalyfjaónæmi sem eina af stærstu heilbrigðisógnum heimsins. Æ fleiri bakteríur eru orðnar ónæmar fyrir sýklalyfjum í kjölfar ofnotkunar á þeim. Ef ekkert verður að gert mun ástandið hafa leitt tíu milljónir manna til dauða árið 2050.
2060: Samkvæmt OECD gæti loftmengun valdið sex til níu milljón ótímabærum dauðsföllum á ári þegar líða tekur á öldina. Á árinu 2010 er talið að þrjár milljónir dauðsfalla megi rekja til loftmengunar.
2118: Eyðing Amasónfrumskógarins hefur ekki verið meiri í tíu ár samkvæmt opinberum gögnum brasilískra yfirvalda. Talið er að eftir hundrað ár verði allir regnskógar jarðar horfnir.
Það er erfitt að spá fyrir um framtíðina. Að stinga höfðinu í sandinn og vonast til að spár reynist rangar er hins vegar feigðarflan.
Þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Gleðilegt ár, gleðilega framtíð.
Skoðun

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar