Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stéttarfélagsins VR, gerði kröfu um að Kvika myndi draga til baka ákvörðun Almenna leigufélagsins um að hækka verð á leigu. Þetta gerði Ragnar haldandi að Kvika ætti Gamma en hann hét því að taka allt fé stéttarfélagsins úr eignastýringu hjá bankanum, en upphæðin nemur 4,2 milljörðum króna.
Ármann Þorvaldsson benti á í samtali við Vísi í gær að Kvika ætti ekki félagið. Kvika hefði gert kauptilboð í Gamma en einn af sjóðum sem er í stýringu hjá Gamma á Almenna leigufélagið.
Samkeppniseftirlitið er með kaup Kviku á Gamma í skoðun og kaupin ganga ekki í gegn fyrr en grænt ljós fæst frá eftirlitinu.
Eftir að hafa fengið að heyra það setti Ragnar fram nýja kröfu um að Kvika myndi rifta fyrirhuguðum kaupum á Gamma, ellegar myndi VR draga 4,2 milljarða úr eignastýringu bankans.

Spurður hvort það yrði mikið högg fyrir rekstur Kviku að missa 4,2 milljarða VR úr eignastýringu segist Ármann ekki geta tjáð sig um einstaka viðskiptavini.
„Eftir yfirtökuna á Gamma eru eignir í stýringu hjá okkur um 420 til 430 milljarðar og eignastýringin er eitt af fjórum tekjusviðum hjá okkur,“ segir Ármann.
Því nemur hlutur VR í eignastýringu Kviku um einu prósenti.
Spurður hvort hann muni funda með Ragnari segir hann það ekki á dagskránni. „En við erum alltaf tilbúin að hitta viðskiptavini okkar.“
Uppfært klukkan 11:30:
Í fyrri útgáfu fréttar kom fram að Kvika væri að kaupa Almenna leigufélagið. Það er ekki rétt. Kvika ætlar að kaupa Gamma, en einn af sjóðum sem eru í stýringu hjá Gamma á Almenna leigufélagið. Þetta hefur hér með verið leiðrétt.