Seðlabankinn hefur varað við hættunni á því að aflandskrónueigendur tiltekinna ríkisskuldabréfa taki fjárfestingu sína út ef frumvarp um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál verður ekki samþykkt.
Seðlabankinn sagði í umsögn um frumvarpið að það hefði þurft að vera samþykkt í gær en umrædd ríkisskuldabréf komust á gjalddaga þá. Til stóð að samþykkja frumvarpið í gær en það var ekki afgreitt eftir 14 klukkustunda málþóf Miðflokksins.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu um hvort varnarorð Seðlabankans hafi raungerst kemur fram að svo sé ekki en hættan sé þó enn til staðar og mælir bankinn með að frumvarpið verði samþykkt sem fyrst.
„Málið snýst m.a. um stóra eign aflandskrónueigenda í ríkisskuldabréfum og hættu á að hún verði ekki endurfjárfest. Hættan hefur ekki raungerst enn og ef samþykkt frumvarps dregst ekki um of er ekki víst að það gerist. Því fyrr sem frumvarpið verður að lögum því minni líkur eru á að hættan raungerist,“ segir í svari Seðlabankans.
Um er að ræða um 25 milljarða aflandskrónueignir sem losnuðu í gær. Seðlabankinn hefur áhyggjur af því að eigendur þeirra endurfjárfesti ekki í íslenskum skuldabréfum og leiti frekar út.
Við þær aðstæður þyrfti Seðlabankinn eyða mun meiri gjaldeyrisforða til að koma í veg fyrir gengisfall í tengslum við losun aflandskróna. Einnig þyrfti að draga meira úr framboði erlends fjár á innlendum skuldabréfamarkaði en reiknað var með þegar frumvarpið var samið.
Varnarorð Seðlabankans um aflandskrónufrumvarpið ekki orðin að veruleika

Tengdar fréttir

Sigmundi heitt í hamsi eftir spurningar Smára: „Hvers konar endemis della er þetta?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, virtist ekki vera hrifinn af spurningum Smára McCarthy, þingmanns Pírata, um hagsmuni hins fyrrnefnda í tengslum við aflandskrónueigendur og vogunarsjóði á Alþingi nú síðdegis.

Þingmenn Miðflokks á eintali við sjálfa sig
Þingmenn í endurnýjuðum og fjölmennari þingflokki Miðflokksins mættu tvíefldir til leiks í umræðum á Alþingi í gær og héldu um þrjú hundruð ræður um frumvarp fjármálaráðherra um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

Þingfundi slitið í morgun eftir 14 tíma málþóf
Eftir rúmlega fjórtán klukkustunda langt málþóf þingmanna Miðflokksins um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál bauð forseti Alþingis þeim að halda umræðunum áfram þegar þingið kemur saman síðar í dag.