Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Kviku banka á öllu hlutafé í GAMMA Capital Management hf. Hluthafafundur Kviku hafði áður samþykkt kaupin átjánda desember síðastliðinn en Fjármálaeftirlitið hafði metið Kviku hæfan til að fara með yfir helmings eignarhlut í Gamma.
Eru kaup Kviku á öllu hlutafé í Gamma enn háð samþykki breska fjármálaeftirlitsins.
Að undangenginni rannsókn er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins sú að ekki séu fyrir hendi vísbendingar um að samruninn leiði til myndunar eða styrkingar markaðsráðandi stöðu samrunaaðila á neinum markaði. Jafnframt verður ekki séð að samkeppni á mörkuðum raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.
Einn seljanda bréfanna, eigandi 3,85% hlutafjár, undirritaðir kaupsamninginn þó með fyrirvara sem ekki hefur verið aflétt. Mun því Kvika eignast 96,15% hlutafjár í Gamma á þessu stigi.
Uppfært með upplýsingum um seljanda bréfa sem ekki hefur aflétt fyrirvara.
