Komið að ögurstundu hjá Rúnari Alex og félögum í fallbaráttunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. maí 2019 15:00 Rúnar Alex og ofurstjarnan Kylian Mbappé. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í Dijon róa lífróður í fallbaráttu frönsku úrvalsdeildarinnar sem lýkur í kvöld. Í lokaumferðinni tekur Dijon á móti Toulouse. Dijon er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 31 stig, tveimur stigum á eftir Caen sem er í sætinu fyrir ofan. Guingamp er þegar fallið og liðið í 19. sæti fylgir þeim niður í B-deildina. Liðið sem endar í 18. sæti mætir hins vegar Troyes eða Lens í tveimur umspilsleikjum um sæti í frönsku úrvalsdeildinni. Til að komast í umspilið þarf Dijon að vinna Toulouse og treysta á að Bordeaux vinni Caen á sama tíma. Ef Dijon vinnur og Caen gerir jafntefli verða liðin jöfn að stigum. Caen verður þó alltaf fyrir ofan Dijon sökum betri markatölu. Caen er með 24 mörk í mínus en Dijon 30. Rúnar Alex kom til Dijon frá Nordsjælland fyrir tímabilið. Hann hefur leikið 24 af 37 deildarleikjum Dijon í vetur. Það eina sem er óráðið í frönsku úrvalsdeildinni er hvaða lið falla. Paris Saint-Germain er löngu búið að tryggja sér meistaratitilinn og Lille og Lyon fylgja liðinu í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Saint-Étienne, Rennes og Strasbourg fara í Evrópudeildina.
Franski boltinn Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Enski boltinn Í beinni: FH - KR | Fyrsti grasleikur sumarsins Íslenski boltinn Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Fótbolti Í beinni: Arsenal - Crystal Palace | Palace getur tryggt Liverpool titilinn Enski boltinn Fleiri fréttir Ari á skotskónum í dramatískum sigri Elfsborg Meistaradeildarvonir Alberts og félaga vænkast Í beinni: Arsenal - Crystal Palace | Palace getur tryggt Liverpool titilinn Í beinni: ÍA - Vestri | Taplausir Vestramenn mæta í Akraneshöllina Í beinni: FH - KR | Fyrsti grasleikur sumarsins Í beinni: Valur - KA | Tvö lið á eftir fyrsta sigrinum Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Þórdís Hrönn með stoðsendingu fyrir sjötta félagið í efstu deild Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Real Madrid fer liða verst út úr myndbandsdómgæslunni Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Frans páfa Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Olmo hetja Börsunga Dramatík í Manchester Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Sjá meira