Senol Gunes, þjálfari tyrkneska landsliðsins í fótbolta, lýsti yfir óánægju sinni með móttökurnar sem Tyrkir fengu á Keflavíkurflugvelli í gær.
„Fótbolti sameinar fólk og tungumál og kynþáttur skipta ekki máli þar,“ sagði Gunes.
Hann sagðist hafa komið til Íslands fyrir rúmum 40 árum. Hann sagði að Laugardalsvöllurinn hafi lítið breyst en fólkið á Íslandi sé þröngsýnna en það var.
„Ég kom til Íslands 1976. Mig minnir að völlurinn sé eins en borgin og fólkið hefur breyst. Ég kom í september en viðmót fólksins var hlýtt. Nú virðist það vera þröngsýnna,“ sagði Gunes.
Gunes sagði að vegabréf og símar Tyrkja hafi verið tekin í gær og furðaði sig á því.
„Af hverju hristu starfsmennirnir vegabréfið mitt? Þeir skoðuðu allt dótið mitt. Ég hef verið í fótbolta í 53 ár en aldrei lent í öðru eins,“ sagði Gunes.
Hann sagði jafnframt ótækt að tyrkneska liðið hafi þurft að bíða lengi á flugvellinum eftir sex og hálfs tíma flug frá Tyrklandi.
„Völlurinn er eins en fólkið á Íslandi er þröngsýnna“

Tengdar fréttir

Segir viðbrögð tyrknesku leikmannanna við öryggisleit í Keflavík stórlega ýkt
Íslenska landsliðið fór í gegnum sömu leit þegar það kom frá Tyrklandi.

Utanríkisráðherra Tyrkja ósáttur við meðferð á tyrknesku leikmönnunum á Keflavíkurflugvelli
Tyrknesku leikmennirnir þurftu að bíða í þrjá tíma við vegabréfaeftirlit og segjast hafa þurft að undirgangasta óþarflega ítarlega leit.

Minnti á að íslenska liðið hefði þurft að bíða lengi eftir komuna frá Konya
Landsliðsfyrirliðinn og -þjálfarinn vildu lítið um burstamálið svokallaða segja.

Tyrkneskur blaðamaður segir reiði stuðningsmannanna vera meira grín en alvara
Alda neikvæðra ummæla sem gengur nú yfir íslenska Twitter-notendur virðist vera meira grín en alvara að sögn Serkan Algan, tyrknesks blaðamanns sem fylgst hefur með umfjöllun um stóra burstamálið í Istanbúl

Tyrknesk stjórnvöld óskuðu skýringa á meintum töfum á flugvellinum
Sendiráð Tyrklands í Osló hafði óskað eftir hraðmeðferð fyrir liðið.

Pollrólegur yfir reiðum Tyrkjum á Twitter: „Ég ætla ekkert að breyta um lögheimili“
Benedikt Grétarsson, íþróttafréttamaður, varð fyrir slysni sameiginlegur óvinur margra Tyrkja á Twitter í gærkvöldi.