Vaknaði með spúandi hver í garðinum Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. júní 2019 07:44 Gedye segist hafa orðið vör við gufustróka í garði sínum í gegnum tíðina. Nú er komin skýring á þeim. Skjáskot/youtube
Íbúi í nýsjálenska bænum Rotorua vaknaði aðfaranótt miðvikudags við dynki og ókyrrð – og gerði strax ráð fyrir að jarðskjálfti stæði yfir. Þegar hún kíkti út um eldhúsgluggann blasti hins vegar við henni óvenjuleg sjón: jörðin hafði opnast og hver myndast í garðinum. „Það var eiginlega stórkostlegt en öðruvísi og dálítið óhugnanlegt,“ sagði Susan Gedye um hverinn, sem hafði stækkað enn meira þegar hún fór út úr húsi á miðvikudagsmorgun. Gedye býr á miklu jarðhitasvæði en hverir eru algeng sjón í Rotorua. Brennisteinslykt liggur iðulega yfir bænum og ferðamenn gera sér gjarnan ferð þangað til að líta hverasvæðið augum. Nýja hverinn í garði Gedye má einmitt rekja til þessara jarðhræringa en hún segist hafa orðið vör við gufustróka í garði sínum í gegnum tíðina. Hverinn heldur áfram að stækka en Gedye neyddist til að flytja úr húsinu ásamt fjölskyldu sinni eftir að vatnspyttur (e. sinkhole) fannst undir eldhúsi hússins. Ekki er gert ráð fyrir að fjölskyldan muni geta flutt aftur inn í húsið.
Eldgos og jarðhræringar Nýja-Sjáland Mest lesið Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Innlent „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Innlent Tveir „galdramenn“ í haldi Innlent Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Erlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Innlent Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Innlent Fleiri fréttir Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Ísraelsher réðst á sjúkrahús Síðasti stjórnarandstöðuflokkur Hong Kong verður leystur upp Biðja Trump um að sýna hörku vegna vatnsdeilna við Mexíkó Tugir sagðir liggja í valnum eftir eldflaugaárás á Sumy Réðust á síðasta starfandi sjúkrahúsið í Gasaborg Fundi Bandaríkjanna og Íran lýst sem „uppbyggilegum“ Ætla í „öfluga“ yfirtöku á Gasaströndinni Snjallsímar undanskildir tollunum Létt fólk hvatt til að halda sig innandyra til að fjúka ekki Menendez bræðurnir nær frelsinu Skjótasta leiðin að friði að verða við kröfum Rússa Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Sjá meira