Þjóðin fylgdist með John Snorra sem var fyrstur Íslendinga til að komast á topp K2, næsthæsta fjalls heims og jafnframt einn þann hættulegasta að klífa. Þetta var árið 2017 en seinna á því ári voru fluttar fréttir af málaferlum hans við Arion banka, en hann hafði þá verið dæmdur til að greiða bankanum rúmar 600 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum auk hálfrar milljónar í málskostnað.
Varð að eignast nýtt og annað líf
John Snorri segir að gjaldþrotsúrskurðinn megi rekja til mála frá því fyrir hrun, árinu 2007 en hann var ábyrgðarmaður fyrir lánum sem fyrirtæki sem hann tengdist í verktakabransanum tóku og hann svo var að einhverju leyti í ábyrgð fyrir. Þetta eru fyrirtæki sem ekki voru þekkt Stallar og svo Þrístikla.
Séra Jón og Jón
Allur gangur er á því hvort ábyrgðir sem snúa að rekstri fyrirtækja falli á menn persónulega og John Snorri segir það svo að ekki sé sama, Séra Jón eða Jón í því. Þar sé farið í manngreinarálit. Hann segir að málin hafi verið í ferli, en svo hafi þau tekið u-beygju þegar hann fór í sína miklu ferð á fjallið. Þá hafi bankarnir hert tökin, lögfræðingar héldu því fram að fyrst hann hefði haft efni á að fara á fjallið, þá hlyti hann að hafa efni á að borga meira. John Snorri segir að vissulega hafi kostnaður verið samfara ferðinni en menn geti nú staðið að því með ýmsum hætti.„Það hefur tekið tvö ár. Ég held að það sé komið gott. Það eru næstum 12 ár síðan allt þetta byrjaði, í samningaviðræður um afborganir.
Ég er löngu búinn að borga höfuðstólinn; þetta er allt innheimtukostnaður, lögfræðingakostnaður og vaxtakostnaður.Mikil vinna hefur farið í að finna sátt og lausn sem væri þá hagur beggja aðila, en þá dúkkar alltaf upp eitthvað annað mál sem þarf að semja um.
Botnlaus hít
Góður vinur Johns Snorra innan bankakerfisins ráðlagði honum og sagði að ef og þegar kæmi að hann gæti ekki staðið undir afborgunum þá myndi bankinn hvort sem er ganga að honum. Og þá myndi allt hitt þurrkast út og í raun þá verði að greiða í einhverja botnlausa hít þar sem aldrei sæist til botns.„Ég ákvað að drífa í þessu. Ég verð að fá nýtt líf,“ segir John Snorri feginn. Segir að það taki tvö ár, að vera gjaldþrota. Þetta var eini kosturinn í stöðunni.
Fjallgöngugarpurinn varpar því öndinni léttar og er hinn ánægðasti. Hann starfar nú við að leiða hópa ungmenna uppá fjöll og hálendið og kynna fyrir þeim undur Íslands. Það er á vegum Ferðafélags Íslands; Ferðafélag unga fólksins. Hann segir það ákaflega gefandi – talsvert betra en standa í stappi við bankakerfið og lögmenn þess.