Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að sterkustu kandídatarnir til að halda keppnina væru Rotterdam og Maastricht, þar sem til staðar er rétt aðstaða fyrir keppnina í báðum borgum, bæði fyrir aðal viðburðinn, sjálfa keppnina, en líka fyrir Eurovision þorpið, EuroClub og Opnunar hátíðina. Auk þess er fjöldi hótel herbergja í borginni fullnægjandi enda er hátíðin vel sótt á hverju ári og þurfa gestir hátíðarinnar samastað.
„Allar borgirnar og tónleikastaðirnir hafa lagt mikla vinnu í kynningarnar sínar. Allar kynningarnar vöktu aðdáun okkar og við viljum þakka öllum sem hafa komið að verkefninu hingað til fyrir jákvæð áhrif þeirra og seiglu. Við erum handviss um að Maastricht og Rotterdam hafi upp á allt það að bjóða sem umsjónarborg þarf að búa yfir,“ sagði Sietse Bakker, aðalframleiðandi Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2020.
Á næstu vikum munu skipuleggjendur hátíðarinnar fara til borganna tveggja sem koma til greina sem umsjónarborg til að meta tónleikastaðina sem hafa verið tilnefndir og aðra staði sem þarf til keppninnar. Til stendur að tilkynnt verði hvaða borg verði fyrir valinu sem umsjónarborg Eurovision 2020 um miðjan ágúst.