Birna Erlingsdóttir hefur verið ráðin til Digido sem sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu. Birna mun vinna með viðskiptavinum Digido í stafrænni vegferð þeirra í net- og markaðsmálum auk þess sem hún mun taka þátt í stefnumótun Digido. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Digido.
Áður starfaði Birna sem sérfræðingur í markaðsdeild WOW air þar sem hún var meðal annars ábyrg fyrir stafrænni markaðssetningu flugfélagsins, markaðsherferðum og hugmyndavinnu. Birna er með B.A. gráðu í listfræði og viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
„Ég er ótrúlega spennt að ganga til liðs við strákana í Digido. Fyrirtæki eru farin að gera sér betur grein fyrir mikilvægi stafrænnar markaðssetningar og tækifærin sem henni felast. Þessi heimur er í stöðugri þróun og möguleikarnir eru endalausir. Hjá Digido mun ég nýta mér þá dýrmætu reynslu sem ég fékk hjá WOW air og hlakka til komandi tíma.”
„Við erum í skýjunum með að Birna sé komin til okkar og mun þekking hennar og reynsla vera frábær viðbót við Digido. Það eru spennandi tímar framundan á sviði stafrænnar markaðssetningar þar sem fyrirtæki eru auknu mæli að nýta gögn, leitarvélar, samfélagsmiðla og fleiri stafrænar leiðir markaðsstarfi í sínu“ segir Andri Már Kristinsson, annar stofnenda Digido
Digido var stofnað í september 2018. Meðal viðskiptavina Digido eru Arion banki, Domino’s, CCP og Bláa lónið.
Birna flýgur frá WOW til Digido
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið

Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent

Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni
Viðskipti innlent

Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar
Viðskipti innlent

Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout
Viðskipti innlent

Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús
Viðskipti innlent

Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör
Viðskipti erlent

ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða
Viðskipti erlent

Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf
Viðskipti innlent

Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn
Viðskipti erlent