Eric Cantona fær þar afhent forsetaverðlaun UEFA fyrir vinnu sína við það að gera líf annarra betra. Aleksander Ceferin, forseti UEFA, hefur verið mjög hrifinn af því sem Eric Cantona hefur gert síðan að hann setti knattspyrnuskó sína upp á hillu.
Eric Cantona er nú 53 ára gamall en hann lék sinn síðasta leik á ferlinum með Manchester United vorið 1997. Cantona náði því að leika 45 landsleiki fyrir Frakka frá 1987 til 1995.
Eric Cantona will receive the 2019 UEFA President's Award at the #UCLdraw in Monaco
What a player #UCLpic.twitter.com/WVHx9XhxjX
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) August 27, 2019
„Þetta eru ekki aðeins verðlaun fyrir hans feril sem fótboltamanns þar sem hann var í hæsta gæðaflokki, heldur erum við einnig að heiðra hann fyrir þá persónu sem hann er,“ hefur BBC eftir Aleksander Ceferin.
„Hann er í mínum augum, maður sem stendur vörð um það sem hann trúir á, maður sem segir sína skoðun og maður sem setur hjarta og sál í þau málefni sem hann styður,“ bætti Ceferin við.
"This award not only recognises his career as a player of the highest calibre, but also honours him for the person he is."
Eric Cantona will be awarded the Uefa President's Award for his commitment to helping improve the lives of others.
More: https://t.co/LtvTInAm9ypic.twitter.com/hmEpIEkwiD
— BBC Sport (@BBCSport) August 27, 2019
Eric Cantona vann ensku úrvalsdeildina fyrst með Leeds árið 1992 en hann vann hana síðan fjórum sinnum á fimm tímabilum með Manchester United frá 1993 til 1997. Hann var aðeins þrítugur þegar hann hætti óvænt vorið 1997.
Aðrir sem hafa fengið forsetaverðlaun UEFA eru kappar eins og David Beckham, Johan Cruyff, Bobby Charlton, Franz Beckenbauer, Bobby Robson og Paolo Maldini.
