Allt varð vitlaust í byrjun vikunnar þegar Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri Þjóðleikhússins, setti inn tilkynningu á Facebook-hópinn Pabbatips og bauð hluta meðlima á ókeypis sýningu á söngleiknum vinsæla um Ronju Ræningjadóttur. Boðið féll í góðan jarðveg og í kjölfarið urðu allar símalínur Þjóðleikhússins rauðglóandi. Pabbar vildu ólmir fara með börn sín í leikhús.
„Í fyrra bauð Þjóðleikhúsið meðlimum sambærileg kvennahóps á Facebook á sýningu og því vildum við gjarnan gera slíkt hið sama fyrir pabbana. Þetta Pabbatips-samfélag er afar fallegt en þar keppast feður um að hjálpa hver öðrum með uppeldi barna sinna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt,“ segir Atli Þór.
Að hans sögn var boðið liður í mun stærra samfélagsátaki leikhússins sem miðar að því að sem flestir fái að kynnast leiklist, óháð búsetu og efnahag. „Við erum að bjóða upp á yfir sextíu ókeypis sýningar um allt land á þessu leikári. Við vorum að frumsýna sýninguna Ómar orðabelg eftir Gunnar Smára Jóhannesson sem er fyrir börn á elsta ári í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskóla.
Allir í leikhús. Það er mottóið,“ segir Atli Þór.
Facebook-hóp boðið í leikhús
Björn Þorfinnsson skrifar
