Jóhannes Harðarson hefur skrifað undir samning við Start sem gildir út tímabilið 2021.
Jóhannes tók tímabundið við Start í vor og hefur gert afar góða hluti með liðið. Start er í 3. sæti norsku B-deildarinnar með 56 stig, þremur stigum á eftir Sandefjord sem er í 2. sætinu.
Tvö efstu liðin fara beint upp í norsku úrvalsdeildina en liðin í sætum 3-6 fara í umspil.
Jóhannes lék með Start á árunum 2004-08 og var aðstoðarþjálfari liðsins um tveggja ára skeið áður en hann tók við því í vor. Hann stýrði áður Flekkerøy í Noregi og ÍBV til skamms tíma.
Jóhannes er annar Skagamaðurinn sem stýrir Start. Guðjón Þórðarson var þjálfari liðsins í nokkra mánuði 2002.
Jóhannes gerði tveggja ára samning við Start
Ingvi Þór Sæmundsson skrifar

Mest lesið




„Get ekki sagt að þetta hafi verið auðvelt“
Körfubolti



Hollywood-liðið komið upp í B-deild
Fótbolti



„Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“
Íslenski boltinn