Elsa Kristjánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata. Hún tekur við starfinu af Erlu Hlynsdóttur og hefur störf þann 1. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Pírata. Erla sagði upp störfum hjá flokknum í sumar.
Elsa hefur starfað sem rekstrar og fjármálastýra UN Women á Íslandi síðustu misseri þar sem hún hefur borið ábyrgð á bókhald félagsins, utanumhald um rekstur, skýrslugerð til stjórnar, deilda og höfuðstöðva félagsins í New York og séð um skjölun, rekstrar og fjárhagsáætlanagerð.
Elsa hefur einnig unnið sem bókari og í fjármálum hjá Jarðboranir hf. og Guide to Iceland ehf. Elsa er með grunngráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands en hún hefur ennfremur lokið námi frá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands - rannsóknamiðstöð um stjórnarhætti þar sem hún hlaut titilinn viðurkenndur stjórnarmaður. Elsa stundar nú fjarnám í opinberi stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Elsa hefur starfað í grasrót Pírata og verið virkur þáttakandi í starfi flokksins síðustu árin. Hún hefur gegnt hinum ýmsu trúnaðarstöðum. Meðal annars verið formaður fjölmiðlunarhóps, ritari kjördæmafélags, skoðunarmaður reikninga, gjaldkeri framkvæmdaráðs og setið í úrskurðarnefnd.
Starfandi framkvæmdastjóri til 1. febrúar Róbert Ingi Douglas sem er núverandi upplýsingastjóri Pírata.
Elsa nýr framkvæmdastjóri Pírata
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið

Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura
Viðskipti innlent

Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný
Viðskipti innlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent

Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka
Viðskipti innlent

Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent

Icelandair skrúfar fyrir fría gosið
Viðskipti innlent


Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira
Viðskipti innlent
