Forstjóri Advania Data Centers segir orkuverð á Íslandi alls ekki samkeppnishæft. Fyrirtækið samdi nýlega um uppbyggingu gagnavers í Stokkhólmi þar sem mun lægra verð er í boði. Formaður Þróunarfélags Grundartanga tekur í sama streng.
„Orkuverð í miðborg Stokkhólms er 20 prósentum lægra en það sem okkur býðst á Íslandi. Sá munur eykst ef gagnaver eru byggð upp í Norður-Svíþjóð. Orkuverð hér er orðið allt of hátt eða 25-40 prósentum hærra en til dæmis í Svíþjóð og Noregi,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri íslenska gagnaversfyrirtækisins Advania Data Centers.
Fyrirtækið hefur samið við Stockholm Exergi um uppbyggingu nýs gagnavers í hátæknigarði í Kista hverfinu í Stokkhólmi. Áætluð heildarfjárfesting er um 8,6 milljarðar króna. Eyjólfur segir að gagnaverið rísi á borgarlandi en hitaveitan kaupir varma sem myndast í tölvubúnaði gagnaversins og nýtist til húshitunar. Þetta lækki umtalsvert orkukostnað gagnaversins. Gagnaverið er það fyrsta sem fyrirtækið byggir erlendis en fyrir eru gagnaver í Hafnarfirði og eitt af stærstu gagnaverum Evrópu í Reykjanesbæ.
Ólafur Adolfsson, formaður Þróunarfélags Grundartanga, hefur einnig áhyggjur af háu raforkuverði. Á Grundartanga vinna um 1.100 manns hjá 20 stórum og smærri fyrirtækjum og um þúsund til viðbótar þjónusta svæðið.
„Við höfum miklar áhyggjur af háu orkuverði. Það er varhugaverð þróun að verið sé að verðleggja íslenskan iðnað út af samkeppnismörkuðum. Við höfum ítrekað varað við þessu. Þetta lýtur ekki eingöngu að samkeppnishæfni nýrra verkefna. Verja þarf þau störf sem fyrir eru,“ segir Ólafur.
Orkuverð til notenda er að mestu sett saman af fjórum þáttum: Raforkuverði frá fyrirtækjum á borð við Landsvirkjun, ON, og HS orku; flutningskostnaði Landsnets, dreifikostnaði sem eru veiturnar, og sköttum. Eyjólfur segir að raforkuhlutinn hér sé almennt ekki langt frá verðunum á Norðurlöndum en flutningshlutinn og dreifingin séu miklu dýrari.
„Þegar íslenskir raforkuframleiðendur bera saman verð hér og í viðmiðunarlöndum nota þeir gjarnan verð á stundarmörkuðum (spot) Norðurlanda og bera þau saman við raforkuverð hér sem bundið er í langtímasamningum. Slíkur samanburður er rangur því að í langtímasamningum um orkukaup á Norðurlöndum er verð töluvert ódýrara en stundarmarkaðir segja til um,“ segir Eyjólfur.
Hann segir að gagnaver og aðrir nýlegir stórnotendur hér á landi greiði umtalsvert hærra verð en uppgefið meðalverð Landsvirkjunar til stóriðju sé.
Telja orkuverð hér allt of hátt
Sighvatur Arnmundsson skrifar

Mest lesið

Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent

Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout
Viðskipti innlent

Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar
Viðskipti innlent

Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör
Viðskipti erlent

Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús
Viðskipti innlent

ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða
Viðskipti erlent

Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf
Viðskipti innlent