Andri Már Ingólfsson, stofnandi flugfélagsins Primera Air, er búinn að stofna ferðaskrifstofu undir nafninu Aventura Holidays. Þetta staðfestir Andri Már í samtali við Vísi en fyrst var greint frá á vef Túrista.
Andri Már segir að búið sé að stofna ferðaskrifstofuna og sækja um ferðaskrifstofuleyfi hjá Ferðamálastofu. Töluverð vinna sé þó eftir og því segir hann ekki tímabært að tjá sig frekar um málið.

Líkt og greint er frá á vef Túrista auglýsir Aventura eftir starfsfólki á vefnum Alfreð.is. Þar segir að Aventura sé ný íslensk ferðaskrifstofa sem hefja muni rekstur nú í janúar og bjóða Íslendingum „spennandi ferðaframboð með því að nýta sér nýjustu tækni í þróun bókunarkerfa til að finna hagkvæmustu ferðir fyrir viðskiptavini sína.“
Þá leiti Aventura að starfsfólki til að vinna með reynsluboltum úr íslenskri ferðaþjónustu. Auglýst er eftir sölustjóra á Íslandi sem og sölufulltrúum.
Andri Már er stofnandi og fyrrverandi eigandi flugfélagsins Primera Air. Félagið varð gjaldþrota í október í fyrra. Í kjölfar greiðslustöðvunar Primera Air keypti TravelCo, félag í eigu Andra Más, allar ferðaskrifstofur Primera Travel Group. Starfsemi félagsins á Íslandi fór fram undir merkjum ferðaskrifstofanna Heimsferða og Terra Nova. Arion banki eignaðist svo í sumar allt hlutafé í TravelCo og hugðist finna félaginu nýja framtíðareigendur.
Í fyrri útgáfu þessarar fréttar kom fram að Andri Már hefði verið forstjóri Primera Air. Það er ekki rétt og hefur verið leiðrétt.