Sterkasta golfmót allra tíma hér landi? Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2020 19:30 Íslandsmeistararnir Guðrún Brá Björgvinsdótti og Guðmundur Ágúst Kristjánsson verða á meðal keppenda um helgina. MYND/[email protected]
Skærustu stjörnur golfíþróttarinnar hér á landi verða á ferðinni í Mosfellsbæ á laugardag og sunnudag þegar ÍSAM-mótið fer fram. Þar gæti verið um að ræða fyrsta mótið sem telur inn á heimslista áhugakylfinga frá því að kórónuveirufaraldurinn setti allt íþróttalífið úr skorðum. Á heimasíðu Golfsambands Íslands segir að eftir því sem næst verði komist hafi keppendahópur á golfmóti á Íslandi alla vega ekki verið sterkari í nokkur ár. Íslandsmótið á Akureyri árið 2016 gæti komist nálægt styrkleikanum. Í kvennaflokki eru atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) skráðar til leiks. Þær hafa ekki keppt á sama golfmóti frá því á Íslandsmótinu á Akureyri árið 2016. Í karlaflokki eru einnig allir sterkustu atvinnukylfingar landsins á meðal keppenda. Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Bjarki Pétursson (GKB), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR, Haraldur Franklín Magnús (GR) og Ólafur Björn Loftsson (GKG). Þá eru sterkustu áhugakylfingar landsins á meðal þátttakenda en flestir þeirra sem stunda nám í Bandaríkjunum eru núna staddir hér á landi vegna kórónuveirunnar. Mótið um helgina er það fyrsta af þremur sem GSÍ stendur fyrir á svokallaðri heimslistamótaröð. Markmiðið með mótaröðinni er að kylfingar geti styrkt stöðu sína á heimslista áhugakylfinga en nú var atvinnukylfingum sérstaklega boðið að taka þátt vegna þess að mótahald erlendis liggur niðri. Samkvæmt golf.is verður leikið eftir sérstökum Covid- og staðarreglum á Hlíðavelli. Keppendafjöldi takmarkast við 39 kylfinga. Á Hlíðavelli verður einmitt einnig leikið á Íslandsmótinu í byrjun ágúst. Helgina 23.-24. maí fer svo fram fyrsta stigamót ársins á mótaröð GSÍ, á Garðavelli á Akranesi. Þar er búist við 140 keppendum.
Golf Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Albert sagður á óskalista Everton og Inter Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Körfubolti Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Fótbolti Lena Margrét til Svíþjóðar Handbolti Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Íslenski boltinn Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Fótbolti KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Körfubolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi á LPGA mótaröðinni Rory McIlroy vildi ekki tala við DeChambeau Átta ára Rory McIlroy æfði sig í að hitta inn í þvottavél mömmu sinnar Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið McIlroy vann Masters í bráðabana Hræddur um að McIlroy klúðri málunum Átti bestu byrjun á hring í sögu Masters Sló kúluna í rassinn á starfsmanni McIlroy stoltur af sjálfum sér Rose enn í forystu á Masters en Rory náði erni og er við toppinn Gat ekki haldið lengur í sér og létti á sér á Augusta Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Krakkakrúttin stálu sviðsljósinu á miðvikudegi fyrir Mastersmótið Fylgstu með þessum tíu á Masters Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters „Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“ Skítaveður og æfingum frestað á Augusta Vann fyrsta mótið eftir að hafa losnað úr fangelsi „Hugsaði að þetta myndi fá mig til að halda kjafti“ Tiger hringdi í Trump til að segja honum frá sambandinu McIlroy meiddur í aðdraganda Masters McIlroy annar til að þéna hundrað milljónir á PGA-mótaröðinni Gunnlaugur Árni í hóp fjörutíu bestu í heimi Tiger og Trump staðfesta sambandið Gunnlaugur Árni fagnaði og fer í hóp fimmtíu bestu McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið Sjá meira