Ólafía á miklu flugi í úrslit og mætir Evu - Hákon sló Guðmund út og mætir Axel Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2020 12:00 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir létt í bragði á Jaðarsvelli. Hún er komin í úrslit, af miklu öryggi. mynd/[email protected]
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Eva Karen Björnsdóttir, báðar úr GR, leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna í holukeppni í golfi. Hákon Örn Magnússon og Axel Bóasson mætast í úrslitum karla. Ólafía hefur leikið af miklu öryggi á mótinu á Jaðarsvelli á Akureyri og ekki varð breyting á í morgun þegar hún sló út Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur með 5/3 sigri. Ólafía hefur unnið Íslandsmótið í holukeppni tvisvar, árin 2011 og 2013, en þarf að vinna Evu Karen í dag til að ná í þriðja titilinn. Eva Karen vann öruggan sigur á Ragnhildi Kristinsdóttur, sigurvegara mótsins frá því fyrir tveimur árum, 4/3. Axel Bóasson þekkir það að vinna Íslandsmót.mynd/[email protected] Hákon Örn, sem keppir fyrir GR, vann Guðmund Ágúst Kristjánsson í æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust á 18. holu en Hákon hafði einnar holu forskot fyrir hana og varði það. Hakon fyrir sigri https://t.co/dNgjJOp6Hh— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) June 21, 2020 GK-ingurinn Axel, sem vann mótið árið 2015, hafði betur gegn Ólafi Birni Loftssyni í undanúrslitunum, 2/1. Úrslitaleikirnir hefjast núna rétt eftir hádegi og einnig verður leikið um 3. sæti.
Golf Mest lesið „Ég get líklegast trúað þessu núna“ Sport Ítalska goðsögnin rakaði sig í fyrsta sinn í 22 ár Fótbolti Amorim ánægður með að sjá leikmenn sína rífast Enski boltinn Banna vinsæla aðferð til æfinga Sport Ræðst hvaða stjörnur bíða strákanna okkar (en kannski ekki alveg) Fótbolti Kippt af velli í hálfleik og látinn heyra það Enski boltinn Benedikt: Hjartað í þeim er risastórt Körfubolti Salah verði áfram því aðrir kostir séu fáir Enski boltinn „Finnst að við ættum að vera með einn til tvo sigra í viðbót“ Körfubolti „Jákvæðasta er að það eru 12 leikir eftir“ Körfubolti Fleiri fréttir Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira