Flugmaðurinn Sigrún Bender og Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro hafa sett einbýlishús sitt við Elliðavatn á sölu. Mbl.is greinir fyrst frá.
Ásett verð er 110 milljónir en fasteignamat eignarinnar er tæplega 84 milljónir. Um er að ræða 223 fermetra einbýlishús við Fosshvarf við Elliðaárvatn með fjallasýn til Hengilsvæðis og Bláfjalla.
Húsið var byggt árið 2018 og eru þar fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Allar innréttingar eru teiknaðar af Thelmu Björk Friðriksdóttur innanhúsarkitekt.
Sérlega stór timburverönd með heitum potti er við húsið en hér að neðan má sjá myndir af eigninni.






