Íþróttafélög um heim allan hafa komið einstaklega illa út úr kórónufaraldrinum. Mörg hafa orðið fyrir miklu tekjutapi og berjast nú í bökkum við að halda starfsemi sinni gangandi. Það virðist þó ekki eiga við um enska knattspyrnufélagið Chelsea sem hefur eytt peningum eins og enginn sé morgundagurinn undanfarnar vikur.
Ef Kai Havertz gengur til liðs við félagið fyrir þá upphæð sem nefnd hefur verið [90 milljónir punda] þá verður Chelsea það enska félag sem hefur eytt hvað mestu í einum og sama félagaskiptaglugganum. Nú þegar hefur félagið keypt Timo Werner og Ben Chilwell á 50 milljónir punda hvorn. Hakim Ziyech kom á 37 milljónir og þá nældi liðið í tvo leikmenn á frjálsri sölu, þá Thiago Silva og Malang Sarr.
Ástæðan bakvið eyðslu Chelsea í sumar eru leikmannasölur liðsins undanfarin ár. Daily Mail fór vel og vandlega yfir stöðuna og studdist við útreikninga frá Swiss Ramble á Twitter en sá sérhæfir sig í fjármálum tengdum knattspyrnu.
Þó Chelsea hafi vissulega eytt dágóðri summu undanfarin ár þá hefur félagið gert einstaklega vel þegar kemur að sölum leikmanna. Alls hefur félagið fengið 450 milljónir punda í kassann á síðustu sex árum. Eden Hazard fór til Real Madrid á 100 milljónir punda sumarið 2019.
Against that, #CFC have sold players for £198m over last two years, mainly Eden Hazard £100m (excluding add-ons) and Alvaro Morata £50m, booking an estimated profit from those sales of £173m. The profit is so high, as most departing players were fully amortised in the accounts. pic.twitter.com/l27ts8Fs4b
— Swiss Ramble (@SwissRamble) August 31, 2020
Einnig hefur Chelsea selt þá Alvaro Morata, Thibaut Courtois, Diego Costa, Nemanja Matic og Oscar á dágóðan skilding.
Chelsea var svo í félagaskiptabanni síðasta sumar og gat þar af leiðandi ekki keypt leikmann sem hafði ekki verið áður hjá þeim. Kaupin á Christian Pulisic höfðu verið staðfest í janúar og Mateo Kovacic var keyptur eftir að hafa verið á láni hjá félaginu.
Chelsea hefur einnig losað leikmenn á góðum launum, til að mynda Gary Cahill, Willian og Pedro ásamt því að selja leikmenn fyrir smærri upphæðir. Þar má nefna David Luiz, Mario Pasalic og Ola Aina.
Það gæti vel verið að við sjáum Chelsea eyða enn meira í leikmenn áður en glugginn lokar. Það er ljóst að Roman Abramovich – eigandi Chelsea – hefur gefið Frank Lampard, þjálfara liðsins, lyklana að fjárhirslum sínum.
OK, enough fancy footwork in the accounts. Back in the real world someone will still have to pay the bill. Fortunately for #CFC, they can call on the Bank of Roman , as their owner has pumped in £1.3 bln since his arrival, including a chunky £247m in 2019. pic.twitter.com/1fNjoy7JjM
— Swiss Ramble (@SwissRamble) August 31, 2020
Það er allavega nær öruggt að Chelsea verða áfram virkir á markaðnum, hvort sem það verði í leikmannakaupum eða sölum. Talið er að þeir Michy Batshuayi, Danny Drinkwater, Ross Barkley, Emerson Palmieri og Tiemoune Bakayoko séu allir á förum frá félaginu.