Krónan opnar sína fyrstu verslun í miðbæ Reykjavíkur klukkan níu í fyrramálið. Verslunin verður við Hallveigarstíg þar sem áður var verslun Bónus í nokkur ár og svo Super 1.
Festi, eigandi Krónunnar, festi kaup á Super 1 í maí og var versluninni lokað í júlí. Síðan þá hefur verið unnið að breytingum á húsnæðinu sem nú er klappað og klárt fyrir opnun.
Verslun Krónunnar við Hallveigarstíg verður sú 23. hér á landi. Verslunin við Hallveigarstíg verður opin frá níu á morgnana til 20 á kvöldin.
Bónus var lengi með tvær verslanir í miðbænum, annars vegar við Hallveigarstíg og hins vegar í Kjörgarði á Laugavegi. Verslunin við Hallveigarstíg var ein þriggja sem Hagar þurftu að loka vegna samruna Haga, Olíuverslunar Íslands og fasteignafélagsins DGV í fyrra.