Léttskýjað og allt að þrettán stiga frost Atli Ísleifsson skrifar 18. nóvember 2020 07:14 Bjart og kalt í dag. Veðurstofan
Hæðarhryggur gengur inn á landið í dag með hægri breytilegri átt og léttskýjuðu veðri. Spáð er norðan- og norðvestan átt, víða 5 til 10 metrum á sekúndum, skýjað með köflum og úrkomulítið austast á landinu fram á kvöld. Kalt verður í veðri, þar sem frost verður víðast á bilinu 2 til 13 stig og kaldast inn til landsins. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Áfram er spáð hægum vindum og léttskýjuðu í fyrramálið. „Vaxandi suðaustanátt síðdegis [á morgun] og þykknar upp sunnan og vestantil á landinu með úrkomu um kvöldið.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hæg breytileg átt, víða léttskýjað og frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Vaxandi suðaustanátt síðdegis og þykknar upp sunnan- og vestanlands, snjókoma eða slydda þar um kvöldið og rigning við stöndina. Á föstudag: Fremur hæg suðlæg átt, skýjað og úrkomulítið, en þurrt norðanlands. Gengur í austan og norðaustan 8-15 m/s seinnipartinn með rigningu eða slyddu víða um land og snjókomu inn til landsins. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Norðan og norðvestan 13-20 m/s, hvassast norðaustantil á landinu. Slydda eða snjókoma á norðurhelmingi landsins og rigning við ströndina. Skýjað og þurrt sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður, en lítilsháttar él við vesturströndina. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins. Á mánudag: Suðaustan og austanátt með rigningu eða slyddu og hita 0 til 5 stig. Þurrt norðantil á landinu með minnkandi frosti. Á þriðjudag: Norðaustan átt og yfirleitt þurrt, en él norðaustan- og austanlands. Frost 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Innlent Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Erlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Maðurinn er laus úr haldi Innlent Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Innlent Fleiri fréttir Víða bjart yfir landinu í dag Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Norðan kaldi eða stinningskaldi í dag Hæglætisveður um páskana Snjókoma eða slydda norðan- og austantil Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Sjá meira