Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Ísafjarðar, hefur verið ráðinn til Arctic Fish sem ráðgjafi í sérverkefni. Hann mun hefja störf um miðjan janúar.
BB greindi frá þessu en í samtali við Vísi segir Daníel þetta ekki þýða neinar breytingar á störfum hans fyrir Ísafjarðarkaupstað. Þeim mun hann sinna eftir sem áður. „Það er bara aukastarf.“
Í BB segir að Daníels sé viðskiptafræðingur, reyndur úr viðskipalífinu og „fær því félagið öflugan liðsmann búsettan á starfssvæðinu til starfa hjá félaginu.“ Þá segir jafnframt að
Arctic Fish sé í örum vexti með tilheyrandi fjölgun verkefna og stefnir á 25 þúsund tonna árlega framleiðslu og sölu á eldisfiski næstu 5 árum.
Telur þetta ekki tefla hæfi sínu í hættu
Í siðareglum Ísafjarðarbæjar eru ýmis ákvæði sem snúa að hagsmunaárekstrum og hæfi, svo sem 8. grein þar sem segir meðal annars að starfsmenn „skulu ekki taka þátt í málsmeðferð og ákvörðunum ef þeir eiga sjálfir aðild að málinu.“ Vísir innti Daníel eftir því hvort störf hans fyrir Arctic Fish tefldi ekki hæfi hans í hættu? Daníel telur svo ekki vera.
„Það eru allir bæjarfulltrúar með önnur störf meðfram bæjarfulltrúastörfum sínum, sem litið er á sem aukavinnu. Í annan stað kemur sveitarfélagið lítið að málefnum fiskeldisins, það er aðallega á hendi ríkisins,“ segir Daníel og vísar í því sambandi til allskyns leyfisveitinga.
Í þriðja lagi segir Daníel til staðar reglur og lög sem segi til um hvenær menn er vanhæfir og hvenær ekki. Hann segist hafa verið í erfiðari stöðu sem eigandi fyrirtækis í ferðaþjónustu, en þá voru leyfisveitingar á hendi bæjarins.
„Ef þú lítur allan hringinn í kringum landið þá er fjöldi manna í svipaðri stöðu og ég. Fólk verður að hafa fyrir salti í grautinn. Þetta er lítið landi. Við gegnum öll tveimur hlutverkum sem erum í bæjarstjórn og verðum bara að passa uppá að fara eftir reglum í þeim efnum öllum.“
Aðalatriðið er að hagsmunir liggi fyrir og séu uppi á borðum, segir Daníel.
Arctic Fish að hálfu í eigu aflandsfyrirtækis
Nokkuð hefur verið fjallað um eignarhald á laxeldisfyrirtækja en starfsemi þeirra hefur verið í veldisvexti á Íslandi á undanförnum árum. Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Stundinni segir að eignarhaldsfélag á aflandssvæðinu Kýpur í Miðjarðarhafinu, sem stundum hefur sagt vera skattaskjól í gegnum tíðina vegna hagstæðs skattaumhverfis, eigi tæplega helmingshlut í Arctic Fish sem til stendur að skrá á hlutabréfamarkað í Noregi á fyrri helmingi næsta árs.
„Eitt af því sem vekur athygli þegar eignarhald laxeldisfyrirtækja eins og Arctic Fish er skoðað er að nær allt hlutafé íslenskra laxeldisfyrirtækja er í eigu erlendra aðila. Einungis 2,5 prósent af hlutafé Arctic Fish er til dæmis í eigu íslensks fyrirtækis og íslenskra einstaklinga.“