Fordæmalausir tímar kalla á fordæmalausar aðgerðir, og í einhverjum tilvikum á fordæmalaus orð. Á kórónaveirutímum er samfélagið undirlagt fréttum af veirunni sem hefur áhrif á alla. Meira að segja tungumálið okkar. Svo mikið er rætt um kórónuveiruna að nýyrði verða til.
Sum orðin gætu verið komin til að vera á meðan önnur fá fólk til að brosa en munu svo líklega hverfa með veirunni, sem fyrst hugsa eflaust flestir.
Hér verður stiklað á stóru í orðum sem eru farin að skjóta upp kollinum í umræðu, samfélagsmiðlum og ummælakerfunum.
Sóttkvíði
Sá kvíði sem skapast meðal fólks vegna ástandsins.
Dæmi: „Gunna frænka er með svo mikinn sóttkvíða að hún er að fara yfir um!“
Kóviti
Sjálfskipaður sérfræðingur í veirufræðum sem lætur hátt í sér heyra og veit betur en aðrir.
Dæmi: „Þú ert nú meiri kóvitinn!“
In Iceland we invented a new noun "Kóviti" in which I here by going to make the official translation to English be a new noun "Coviac" #Coviac
— Jóhann B Guðmundsson (@johannbg) March 24, 2020
Coviac is a person that knows better than the #CDC
Sótthvíld
Einstaklingur orðinn þreyttur á ástandinu, jafnvel verið undir miklu álagi og fær kærkomna hvíld á veirutímum.
Dæmi: „Ég er alveg búinn á því eftir vikuna elskan. Ég held við ættum að skella okkur upp í bústað í sótthvíld.“
Koviðmágur
Einstaklingur sem smitar mann sem smitar svo annan mann. Sá fyrsti og síðasti eru þar með orðnir koviðmágar. Vísar til tengsla tveggja karlmanna sem sænga hjá sömu konu.
Dæmi: „Heyrðu, vissirðu að Siggi og Kobbi eru koviðmágar?“
Einstaklingur sem smitar mann, sem smitar svo annan mann, er koviðmágur þess síðastnefnda.
— Konrad Jonsson (@konradj) March 20, 2020
Faðmflótti
Lýsir því ástandi þegar fólk þarf að viðhalda tveggja metra reglu sem eðlilega felur í sér að fólk getur ekki knúsast eins og venjulega.
Dæmi: Fólk veltir fyrir sér hvort faðmflótti muni verða áfram ríkjandi í samfélaginu þegar kórónuveiran heyrir sögunni til.
Kórónotatilfinning
Óþægileg tilfinning vegna fregna af kórónaveirunni.
Dæmi: „Ég er með kórónotatilfinningu vegna stöðunnar.“
Smitskömm
Að skammast sín fyrir að vera smitaður af kórónuveirunni.
Dæmi: Frosti upplifði mikla smitskömm og lét engan vita að hann væri smitaður af kórónuveirunni.
Cofit
Heimaæfingar stundaðar í ástandinu ætlaðar að koma manni í betra líkamlegt form. Á rætur að rekja til Crossfit.
Dæmi: Velkomin í Cofit dagsins. Í dag ætlum við að vinna með æfingar þar sem við notum sófann okkar, tvo stóla og þrjár fullar tveggja lítra vatnsflöskur.
Samgöngubann
Ekki nýtt orð en notað daglega fyrir misskilning þegar fólk ætlar sér að segja samkomubann. Misskilningurinn náði hæstu hæðum í fylgiriti Fréttablaðsins í dag þar sem forsíðan var skreytt tveimur orðum; sóttkví og samgöngubann. Ritstjóri Fréttablaðsins baðst afsökunar á misskilningnum á vef Fréttablaðsins og útskýrði að auðvitað hefði átt að standa samkomubann.
Ekki skera niður í próförkinni þegar kreppir að... pic.twitter.com/MtmvyYCuF8
— Fanney Birna (@fanneybj) March 24, 2020
Hefurðu heyrt um fleiri nýyrði? Láttu okkur vita í ummælakerfinu að neðan eða sendu okkur tölvupóst á ritstjorn@visir.is.