Í tilkynningu frá Isavia segir að Auður Ýr hafi síðastliðin fjögur ár verið aðstoðarforstjóri hátæknifyrirtækisins Völku, ásamt því að stýra rekstrar- og mannauðssviði félagsins.
„Þar áður var hún yfirmaður gæðastjórnunar, LEAN og innri samskipta hjá Rio Tinto (ISAL) í Straumsvík.
Auður er með B.Sc. gráðu í sjávarvísindum frá Coastal Carolina University og M.Sc. í umhverfisefnafræði frá University of Maryland í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningunni.