„Líkt og gjarnan fylgir háum þrýsting þá mun loft flæða af miðhálendinu og niður í átt að sjávarmáli og því víðast hvar landátt, oft 3-10 m/s,“ segir í hugleiðingunum.
Það er svo spáð léttskýjuðu veðri í öllum landshlutum og þá ætti sólin að vera nægilega hátt á lofti til þess að veita nokkurn yl. Hiti yfir daginn verður væntanlega á bilinu tvö til sex stig. Það verður því fremur gott veður í dag.
Veðurhorfur á landinu:
Breytileg átt, 3-10 m/s, yfirleitt léttskýjað og hiti í kringum frostmark en 2 til 5 stig syðst. Gengur í suðvestan 8-13 norðan- og austanlands í kvöld en lægir suðvestantil.
Vestan og suðvestan 5-13 á morgun en 15-20 norðan- og norðvestanlands. Þykknar upp vestantil með súld eða lítilsháttar rigningu með köflum undir kvöld en bjartviðri um austanvert landið. Hiti 0 til 6 stig.
Á miðvikudag:
Vaxandi vestan- og suðvestanátt og hlýnar, 8-15 m/s og hiti 0 til 5 stig seinnipartinn. Léttskýjað en þykknar upp eftir hádegi vestanlands með lítilsháttar súld norðvestantil.
Á fimmtudag (skírdagur):
Vestan 5-13 m/s, skýjað og dálítil súld á Vestfjörðum og með norðurströndinni en annars þurrt. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn.
Á föstudag (föstudagurinn langi):
Hvöss vestan- eða suðvestanátt og súld eða rigning á vesturhelming landsins en þurrt og bjart veður eystra. Hiti 5 til 10 stig. Kólnar og fer að snjóa norðvestantil um kvöldið.
Á laugardag:
Vestan 10-18 m/s en snýst í norðan 10-18 uppúr hádegi. Él en styttir upp sunnanlands er líður á daginn. Ört kólnandi veður, talsvert frost um kvöldið.
Á sunnudag (páskadagur):
Útlit fyrir norðan hvassviðri með snjókomu eða él norðan- og austanlands en bjart með köflum suðvestantil. Áfram talsvert frost.
Á mánudag (annar í páskum):
Minnkandi norðanátt og ofankoma, víða léttskýjað um kvöldið. Kalt í veðri.