Jói Fel var áður þekktastur fyrir hæfileika sína í bakstri en nú er hann orðinn vinsæll listamaður hér á landi. Í viðtali í Brennslunni fyrr í dag ræddi Jói Fel um listaverkin og allan matinn sem hann sýnir á Instagram. þessa dagana
„Þessi tók sirka fimm, sex daga og það var reyndar smá pressa,“ segir Jói Fel um málverkið.
Jói Fel Jr. sonur bakarans kom með þessa hugmynd og hafði samband við Egil Ploder og kom þessau áfram.
Sá Rikka G þegar hann opnaði augun
„Ég var með andlitið á þér, smettið á þér, fyrir framan mig alla páskana,“ segir Jói Fel við Rikka um þetta verkefni. Hann eyddi mörgum dögum í að spá í smáatriðum andlitsins, svipinn og augun.
„Þegar ég vaknaði á morgnana sá ég bara þig ekki konuna.“
Jói Fel segir að hann hafi alltaf haft ástríðu fyrir myndlistinni. Hann segist vera sjálflærður listamaður, fyrir utan að sækja myndlistartengd námskeið og hafa farið um tvítugt í kvöldskóla í Myndlistarskóla Reykjavíkur.
„Ég hef alltaf verið að teikna og mála. Þetta er bara meðfætt eins og hjá mörgum. Svo hef ég haft rosalega góðan tíma undanfarið að ég hef verið að mála og mála.“
Eins og fjallað var um hér á Vísi á síðasta ári fór bakarísrekstur Jóa Fel í þrot í haust. Síðan þá hefur verið svo mikið að gera í myndlistinni hjá Jóa Fel að hann hefur varla undan. Fólk er meðal annars að panta hjá honum andlitsmyndir til að gefa í gjafir. Á Instagram síðu Jóa Fel má sjá brot af þessum myndum.
„Þetta er bara æðislegt,“ segir Jói Fel um vinsældirnar. Viðtalið í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.