Þar með er ljóst að Víkingar mæta Fjölni eða Kríu í úrslitum um sæti í Olís-deild karla á næstu leiktíð.
Viðureign Víkinga og Harðar hefur verið einkar skemmtileg. Fyrsti leikurinn var tvíframlengdur en þar voru það Víkingar sem höfðu betur. Hörður vann leik númer tvö á heimavelli og því þurfti að grípa til oddaleiks.
Leikur kvöldsins var jafn framan af en á endanum sigu Víkingar fram úr og unnu sjö marka sigur, 39-32. Jóhannes Berg Andrason var markahæstur í liði Víkings með 8 mörk. Þar á eftir kom Arnar Steinn Arnarsson með 7 mörk.
Hjá Ísifirðingum var Raivis Gorbunovs með 10 mörk. Þar á eftir kom Jón Ómar Gíslason með 5 mörk.