„Við viljum hjálpa erlendum ferðamönnum að finna aftur ævintýraþrána og með ákveðnum táknrænum hætti. Kannski helsti minnisvarði þessa erfiðu tíma eru joggingbuxurnar sem eru búnar að fylgja okkur í gegnum fjarvinnu, fjarfundum eða þegar við pöntum mat í gegnum netið,” segir Daði Guðjónsson, fagstjóri neytendamarkaðssetningar hjá Íslandsstofu.

Forseti Íslands fékk fyrsta parið af joggingbuxnaskónum, sem hannaðir eru af Ýr Þrastardóttur. Strax er mikil eftirspurn eftir skónum, sem verða fáanlegir frá fyrsta júlí, og í takmörkuðu upplagi. Skórnir verða einungis fyrir ferðamenn en þeir geta pantað þá í gegnum netið.
Verkefni upp á einn og hálfan milljarð
„Þetta eru alvöru gönguskór sem hægt er að nýta. Það er líka gaman að segja frá því að þetta er allt úr endurunnu efni og tala nú ekki um joggingbuxurnar sem hefði kannski annars lent í ruslinu,” segir Daði enn fremur.

Öll vinnsla við verkefnið er íslensk en gefið var út tónlistarmyndband með lagi sem er samið af Ásgeiri Orra Ásgeirssyni og Ragna Kjartansdóttir, eða Cell7, flytur það.
Aðgerðin er hluti af verkefninu „Ísland - saman í sókn“ sem kostar þegar allt er talið um einn og hálfan miljarð króna. Daði segir að bundnar séu vonir við að það muni skila fleiri bókunum til landsins.