„Þetta þýðir að við getum haldið hlaupið nánast óbreytt frá undanförnum árum. Við erum ennþá með hólfaskiptingu, sem verður vonandi aflétt þegar nær dregur. Það er ekki alveg búið að ákveða það,“ útskýrir Eyrún. Einnig er ekki enn búið að ákveða hvort barnahluti hlaupsins fari fram.
Meiri áhugi eftir Covid
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 21. ágúst. Eyrún segir að áheitasöfnunin í gegnum Hlaupastyrk fari vel af stað.
„Hún er aðeins yfir það sem hún var á sama tíma í fyrra, sem er bara æðislegt. En við hvetjum alla hlaupara sem hafa skráð sig til leiks, að skrá sig líka inn á Hlaupastyrk og velja sér málefni og byrja að safna.“
Ekki var hægt að halda hlaupið á síðasta ári vegna heimsfaraldursins en hlauparar gátu þó hlaupið sína vegalengd hver í sínu lagi og safnað áheitum.
„Þetta er stærsta góðgerðarsöfnunin á landinu og fyrir mörg góðgerðarfélög er þetta peningurinn sem heldur þeim gangandi út árið. Því vantar okkur alltaf hlaupara sem eru tilbúnir til að taka þátt og styrkja málefni sem er þeim nærri.“

Eyrún finnur fyrir auknum hlaupaáhuga hér á landi eftir Covid-tímabilið.
„Skráningin í maraþonið er á pari við undanfarin ár og mun betri en við bjuggumst við. Ég gæti trúað því að það yrðu jafnvel fleiri í ár því að það eru svo margir byrjaðir að hlaupa í heimsfaraldrinum. Við finnum fyrir meiri áhuga og þá sérstaklega í lengri vegalengdirnar. Það eru fleiri farnir að færa sig yfir í tíu kílómetrana úr þremur og svo jafnvel í lengri hlaupin, 21 og 42 kílómetra.“
Allir geta verið með
Sjálf hefur Eyrún tekið nokkrum sinnum þátt í hlaupinu, bæði í 10 kílómetra vegalengdinni og í hálfmaraþoni.
„Það er líka ótrúlega gaman að vinna við þetta verkefni. Maður vinnur með svo fjölbreyttum hópi fólks og er í miklum samskiptum við góðgerðarfélög líka. Það er svo frábær stemning, við mætum alltaf eldsnemma niður á Lækjargötuna á hlaupadegi og það eru allir í góðu skapi. Að hitta fólk á meðan þú ert að hlaupa gefur þér svo líka aukakraft.“
Á síðunni Hlaupastyrkur má sjá lista yfir góðgerðarfélög og þá hlaupara sem eru byrjaðir að safna. Þegar þetta er skrifað hafa safnast tæpar fimm milljónir fyrir hin ýmsu félög og samtök.
„Ég hvet alla til þess að taka þátt í þessum degi, hvort sem það ætlar að hlaupa eða hvetja á hliðarlínunni. Það geta allir tekið þátt, til dæmis með því að heita á hlaupara, vini og vandamenn, í gegnum Hlaupastyrk og láta þannig gott af sér leiða. Ég hvet hlaupara líka til að vera duglegir að deila sínum áheitasíðum á samfélagsmiðlum og láta vita af sér.“