Því hafi nefndin ákveðið að skimunarskylda verði lögð niður frá og með 1. september næstkomandi. Þetta segir Boolsen í samtali við Kringvarpið.
Boolsen segir einnig að nefndin hafi skilað tillögum til landsstjórnarinnar um frekari afléttingar aðgerða. Hann vildi ekki tjá sig efnislega um tillögurnar fyrr en stjórnin hefði tekið afstöðu til þeirra.
Mæla með að fólk fari í sýnatöku tveimur dögum fyrir og eftir komu
Skrifstofa Lögmanns Færeyja tilkynnti í dag að mælst væri til þess að fólk fari í sýnatöku tveimur dögum fyrir og eftir komu til Færeyja. Þá er hvatt til þess að fólk fari varlega þar til niðurstaða seinni skimunar liggi fyrir.
Bárður á Steig Nielsen lögmaður segist fagna breytingu á reglum á landamærunum en að hann voni jafnframt að fólk fari að tilmælum yfirvalda.
Enginn greindist smitaður í gær
Samkvæmt nýjustu tölum á corona.fo greindist enginn smitaður í Færeyjum í gær. Þá segir einnig að aðeins sex hafi smitast í yfirstandandi bylgju.
Frá upphafi faraldurs í Færeyjum hafa 999 greinst smitaðir og tveir látist af völdum Covid-19.