Björn Leví Gunnarsson leiðir lista Pírata í Reykjavíkurkjödæmi suður í kosningunum.

Hér má sjá stutt myndband frá Birni þar sem læra má um áherslur hans og uppruna. Meðal annars það að hann hafi einu sinni tekið þátt í kókópuffs-kappáti og unnið.
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?
Fjallasýnin við Grundarfjörð - Kirkjufell.
Hvað færðu þér í bragðaref?
Þrist, jarðaber, hrískúlur og karamellusósu.
Uppáhalds bók?
The Diamond Age: Or, A Young Lady's Illustrated Primer - eftir Neil Stephenson.

Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla)
Heill hellingur af Eurovision lögum. Ég skammast mín samt ekkert fyrir það samt.
Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi)
Í hinu Reykjavíkurkjördæminu.
Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi.
Það var nóg að gera í vinnunni.
Hvað tekur þú í bekk?
Ég kláraði 10. bekk.
Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat?
Fyrir.
Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu)
Kennsla.
Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi?
Psst, kjarnorkuvopn eru eins og stórir bílar. Breyta ekki neinu um stærð.
Uppáhalds tónlistarmaður?
Nick Cave.
Besti fimmaurabrandarinn?
Ég gleymi alltaf bröndurum.
Ein sterkasta minningin úr æsku?
Að ganga með ömmu og afa að upptökum Skaftár.
Hver er fyrirmynd þín í pólitík?
Mandela, Václav Havel, Gandhi, Vilmundur Gylfason
Besta íslenska Eurovision-lagið?
C'est le dernier qui a parlé qui a raison.
Besta frí sem þú hefur farið í?
Þegar ég fór til pabba sem vann á seli í Noregi þegar ég var krakki.
Uppáhalds þynnkumatur?
Ekki hugmynd, verð ekki þunnur það oft að ég hafi mótað mér eitthvað skipulag utan um það.
Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið?
Tvisvar.
Uppáhalds Fóstbræðraatriði?
Bank í ofnum.
Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum?
Vann óvart einhvern stórmeistara í fjöltefli.
Rómantískasta uppátækið?
Of persónulegt. Varðar aðra manneskju en sjálfan mig.