Sigur HK á Stjörnunni í gær þýðir að Fylkisliðið er fallið úr Pepsi Max deild karla en það verður aftur á móti mikil spenna í lokaumferðinni um hvaða lið fylgir Árbæingum niður í Lengjudeildina.
Sú staða gæti komið upp að liðin sem eru í fallsæti, Keflavík, HK og ÍA gætu öll endað með jafnmörg stig og jafna markatölu eftir lokaumferðina.
Liðin eru nú með 21 stig (Keflavík), 20 stig (HK) og 18 stig (ÍA) en Skagamenn eru með þetta í eigin höndum því þeir mæta Keflvíkingum í lokaumferðinni.
Öll þessi lið gætu líka endað með 21 stig og jafna markatölu og það þyrfti ekkert fáránleg úrslit til þess.
Vinni ÍA eins marks sigur á Keflavík á sama tíma og HK gerir jafntefli við Breiðablik þá myndu öll þrjú liðin enda með 21 stig og 15 mörk í mínus í markatölu.
Skagamenn stæðu þá best að vígi og myndu taka níunda sætið á flestum mörkum skoruðu.
HK og Keflavík gætu hins vegar endað með jafnmörg stig og nákvæmlega sömu markatölu. Það yrði niðurstaðan ef HK gerir jafntefli og Keflavík tapar en Keflvíkingar fá á sig einu marki meira en HK.
Fari sem dæmi 1-0 fyrir ÍA á móti Keflavík á sama tíma og HK gerði markalaust jafntefli við Breiðablik þá myndu HK og Keflavík enda nákvæmlega jöfn í tíunda sætinu með 21 stig og markatöluna 21-36. En hvað ræður þá hvort liðið fellur?
Samkvæmt reglugerð KSÍ um knattspyrnumót þá værum við þarna komin niður í D-lið.
Þar eru tekin saman fjöldi stiga í innbyrðis leikjum. HK og Keflavík hafa mæst tvisvar í deildinni í sumar. Keflavík vann 2-0 sigur í Keflavík en HK vann 1-0 sigur í Kórnum. Bæði því með þrjú stig í innbyrðis leikjum.
Það þyrfti því að fara alla leið niður í E-lið til að skera úr um það hvort liðið félli. Þar er tekinn saman markamismunur í innbyrðis leikjum og þar er Keflavík með eins marks forskot.
Það eru líka til F- og G- liður sem eru fjöldi skoraðra marka í innbyrðis leikjum og fjöldi skoraðra marka á útivelli í innbyrðis leikjum. Væri það líka jafnt þyrftu liðin að leika úrslitaleik um sætið. Það gerist þó ekki í ár.
- Reglugerð númer 21.3 hjá KSÍ yfir knattspyrnumót
- 21.3. Sigurvegari í stigakeppni er það lið sem hlýtur flest stig og í 2. sæti er það lið sem hlýtur næst flest stig o.s.frv. Röð liða í stigakeppni ákvarðast nánar samkvæmt eftirfarandi (sbr. þó grein 21.4):
- -
- a. Fjöldi stiga.
- b. Markamismunur (skoruð mörk að frádregnum fengnum mörkum).
- c. Fjöldi skoraðra marka.
- d. Fjöldi stiga í innbyrðis leikjum.
- e. Markamismunur í innbyrðis leikjum.
- f. Fjöldi skoraðra marka í innbyrðis leikjum.
- g. Fjöldi skoraðra marka á útivelli í innbyrðis leikjum.
- -
- Ef úrslit fást ekki skv. framangreindu í meistaraflokki, skulu liðin leika úrslitaleik (úrslitaleiki ef fleiri en tvö lið) ef nauðsyn krefur, en í öðrum flokkum skal ákvarða röð með hlutkesti.