Það var fjöldi Íslendingaliða í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er heil umferð fór fram í dag. Það voru hins vegar fáir leikmenn sem stigu fæti inn á völlinn. Hér að neðan má sjá fáránlega vítaspyrnu Norrköping sem kostaði liðið að öllum líkindum stig.
Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson hélt stöðu sinni í marki Gautaborgar sem sótti Norrköping heim. Ari Freyr Skúlason var fjarverandi í liði Norrköping vegna meiðsla en táningurinn Jóhannes Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk heimamanna.
Gamla brýnið Marcus Berg kom Gautaborg yfir eftir tæpan stundarfjórðung en Christoffer Nyman jafnaði metin fyrir heimamenn og staðan 1-1 í hálfleik. Í upphafi síðari hálfleiks fengu heimamenn vítaspyrnu en ákváðu að vera rosalega sniðugir í stað þess að lúðra boltanum á markið.
Þessa ömurlegu vítaspyrnu má sjá hér að neðan.
Variant! Levi till Adegbenro, men målet godkänds inte av domarteamet pic.twitter.com/RCoqB26eeI
— discovery+ sport (@dplus_sportSE) December 4, 2021
Bernardo skoraði svo skömmu síðar fyrir gestina sem unnu leikinn á endanum 2-1.
Í öðrum leikjum var það helst að frétta að Aron Bjarnason spilaði 14 mínútur í 4-2 tapi Sirus gegn AIK. Valgeir Lunddal Friðriksson fékk ekki að spila í 0-1 tapi Häcken. Jón Guðni Fjóluson er frá vegna meiðsla og spilaði ekki í 5-3 sigri Hammarby á Kalmar.
Þá spilaði Sveinn Aron Guðjohnsen síðustu mínútuna eða svo í 3-2 sigri Elfsborg á Örebro. Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson sat hins vegar allan tímann á bekk Elfsborg.
Malmö FF är svenska mästare!
— discovery+ sport (@dplus_sportSE) December 4, 2021
Se matchen på https://t.co/Nmw67Zlu4o pic.twitter.com/c9MJruT583
Um var að ræða lokaumferð sænsku deildarinnar. Malmö er meistari þar sem liðið er með betri markatölu en AIK. Djurgården kemur þar á eftir og nælir því í síðasta Evrópusætið.