Gert er ráð fyrir að kennsla geti síðan hafist aftur þann 5. janúar.
Næturklúbbum verður lokað og annarskonar veitingastöðum og börum verður lokað frá miðnætti fram til klukkan 5 að morgni. Þá eru grímur teknar upp aftur á slíkum stöðum þegar fólk stendur upp frá borði sínu.
Frá og með morgundeginum verður einnig sett bann á tónleikahald þar sem fleiri en 50 koma saman en það á þó aðeins við á stöðum þar sem fólk stendur. Áfram verður opið fyrir tónleika og sýningar þar sem fólk situr.
Sérstakur kórónuveirupassi verður áfram notaður í landinu sem sýnir hvort fólk hafi fengið bólusetningu. Gildistími hans hefur þó verið styttur og nú mega ekki vera liðnir meira en sjö mánuðir frá síðustu bólusetningu til að passinn haldi gildi sínu.
Áður var miðað við ár.
Um leið og Mette Frederiksen kynnti nýju reglurnar biðlaði hún eindregið til fyrirtækja að aflýsa jólaboðum og öðrum samkomum yfir hátíðarnar. Og að síðustu eru allir Danir sem geta það á annað borð eindregið hvattir til að vinna heiman frá sér.