Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en eigendur ellefu fiskimjölsverksmiðja fengu óvænt þær fréttir frá Landsvirkjun fyrir tólf dögum, í upphafi loðnuvertíðar, að engin afgangsorka væri til í kerfinu. Þeir þyrftu að keyra rafvæddar loðnubræðslurnar á olíu.
Við spurðum Hörð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar ehf., hvað þetta væri stórt dæmi sem fyrirtækið hefði núna allt í einu fengið upp í hendurnar:
„Þetta er náttúrlega viðbót við það sem verið hefur undanfarin ár vegna þess að þetta er extra stór vertíð. Og við gerum ráð fyrir því að þá verði þetta auka 20 milljónir lítra, sem við þurfum að koma til verksmiðja í landinu,“ svarar Hörður og miðar við þá forsendu að engin raforka fáist í bræðslurnar.

Til að átta sig betur á magninu má geta þess að þetta er álíka og rúmast í 550 olíuflutningabílum af lengri gerðinni, að sögn Harðar. Olían verður þó ekki flutt á trukkum um þjóðvegina.
„Nei, við flytjum þetta allt saman með Keili. Við erum að þjónusta sjö verksmiðjur í landinu. Allt eldsneyti sem þær nota, fyrir utan rafmagn, verður flutt með Keili. Við þurfum svona 26 aukaferðir með Keili.“
Þetta þýðir þrjá til fjóra skipsfarma að jafnaði á hverja verksmiðju. Nokkrar þeirra munu þó fá olíu með skipum beint frá útlöndum. En svo mikið er víst; það er hafin törn hjá skipverjunum á Keili.

„Já, já. Það er bara unnið alla daga allan sólarhringinn á Keili núna framundan næstu mánuði. Það er bara skiptiáhöfn á honum.“
-Þannig að hann verður alveg á útopnu?
„Hann verður alveg á útopnu, alla daga. Þetta er nú eina olíuflutningaskipið sem Íslendingar eiga. Þannig að við leggjum mikið traust á það.“
-En fyrir ykkur í olíubransanum, eruð þið ekki bara að gleðjast yfir þessum auknu verkefnum?
„Jú, gera það ekki allir sem fá aukin verkefni? Þeir gleðjast. Við tökum bara þátt í gleðinni með fiskimjölsframleiðendum,“ svarar forstjóri Olíudreifingar.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: