Í færslunni segir Þóra Kristín að hálfgert stríðsástand ríki innan SÁÁ og að nú sé unnið að því leynt og ljóst „að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfengismeðferð, lent á vegg í lífinu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af.“
„Það er sýnu alvarlegra að fyrrverandi stjórnendur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélagsmiðlum fyrir Kára Stefánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðalstjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ segir Þóra Kristín.
Einnig hafi það verið gert tortryggilegt að hún, sem starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar, og Kári Stefánsson forstjóri væru að láta til sín taka í starfi SÁÁ í ljósi samstarfs við sjúkrahús samtakanna um rannsóknir.
Kári Stefánsson einnig sagt sig úr aðalstjórn SÁÁ
Þóra Kristín segist hafa viljað stilla til friðar í samtökunum en ekki auka á ófriðinn.
„Ég ætla því ekki að leggjast í stríðsrekstur og vil hvorki fórna starfi mínu né æru minni og yfirmanns míns fyrir sjálfboðavinnu fyrir samtökin.“
Hún dragi til baka framboð sitt til formennsku og setu í framkvæmdastjórn í von um að samtökin finni formann sem sé óumdeildur.
„Hættan er sú að að það sé erfitt í samtökum þar sem meirihlutinn hefur átt við áfengisvanda að stríða einhvern hluta ævinnar og verið gerendur og þolendur allskyns ofbeldis, flestir hvortveggja,“ segir í færslu Þóru Kristínar. Bæði hún og Kári Stefánsson hafi nú sagt sig úr aðalstjórn SÁÁ.