Allir leikmenn íslenska liðsins eru komnir út til Bandaríkjanna og æfðu saman í sólinni í Los Angeles í dag.
A landslið kvenna er mætt til Los Angeles.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) February 15, 2022
Fyrsti leikur liðsins á SheBelieves Cup er á fimmtudag kl. 23:00 að íslenskum tíma, en þá mætir liðið Nýja Sjálandi.#dottir #LeiðinTilEnglands #alltundir pic.twitter.com/C6cvhn7u0g
Ísland tekur þátt á SheBelieves mótinu í fyrsta. Auk íslenska liðsins taka Bandaríkin, Tékkland og Nýja-Sjáland þátt að þessu sinni.
Fyrsti leikur Íslendinga er gegn Ný-Sjálendingum klukkan 01:00 aðfaranótt föstudags. Leikurinn fer fram á Dignity Health Sports Park, heimavelli MLS-liðsins Los Angeles Galaxy. Ísland mætir svo Tékklandi á sama velli klukkan 23:00 á sunnudaginn.
Íslenska liðið færir sig svo yfir til Dallas í Texas og mætir þar heimsmeisturum Bandaríkjanna á Toyota Stadium, heimavelli FC Dallas, klukkan 02:00 aðfaranótt fimmtudagsins 24. febrúar.
Þetta er í fyrsta sinn síðan á Algarve-mótinu 2015 sem Ísland mætir Bandaríkjunum. Þá gerðu liðin markalaust jafntefli. Ísland og Bandaríkin hafa alls mæst fjórtán sinnum. Bandaríska liðið hefur unnið tólf leiki og tvisvar hefur orðið jafntefli.

Ísland og Nýja-Sjáland hafa einu sinni mæst. Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Algarve mótinu 2016 en Ný-Sjálendingar unnu í vítaspyrnukeppni, 6-5.
Ísland og Tékkland hafa fimm sinnum mæst, síðast í undankeppni HM síðasta haust. Þá unnu Íslendingar 4-0 sigur með mörkum Dagnýjar Brynjarsdóttur, Svövu Rósar Guðmundsdóttur og Gunnhildar Yrsu Jónsdóttir. Þá skoraði leikmaður Tékka sjálfsmark. Það var fyrsti sigur Íslendinga á Tékkum.
Ísland og Tékkland mætast svo aftur í Teplice 12. apríl. Fimm dögum áður mætir Ísland Hvíta-Rússlandi í Borisov. Með sigri í báðum leikjunum kemst Ísland á topp riðilsins í undankeppni HM og kemur sér í afar góða stöðu fyrir síðustu tvo leikina í henni í haust.
Þorsteinn Halldórsson valdi 23 leikmenn í íslenska hópinn sem má sjá hér fyrir neðan.
Markverðir
- Sandra Sigurðardóttir - Valur - 39 leikir
- Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Bayern Munich - 5 leikir
- Telma Ívarsdóttir - Breiðablik
Varnarmenn
-
Hallbera Guðný Gísladóttir - Kalmar - 123 leikir, 3 mörk
-
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 97 leikir, 6 mörk
-
Sif Atladóttir - Selfoss - 84 leikir
-
Elísa Viðarsdóttir - Valur - 43 leikir
-
Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 41 leikur
-
Guðrún Arnardóttir - Rosengard - 13 leikir, 1 mark
-
Ásta Eir Árnadóttir - Breiðablik - 8 leikir
-
Natasha Moraa Anasi - Breiðablik - 4 leikir
Miðjumenn
- Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 97 leikir, 32 mörk
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 84 leikir, 12 mörk
- Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 19 leikir, 3 mörk
- Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg - 16 leikir, 1 mark
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern Munich - 13 leikir, 5 mörk
- Karitas Tómasdóttir - Breiðablik - 7 leikir
- Ída Marín Hermannsdóttir - Valur - 1 leikur
Sóknarmenn
-
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Brann - 57 leikir, 9 mörk
-
Agla María Albertsdóttir - Häcken - 42 leikir, 3 mörk
-
Svava Rós Guðmundsdóttir - Brann - 30 leikir, 2 mörk
-
Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg - 13 leikir, 6 mörk
-
Amanda Jacobsen Andradóttir - Kristianstad - 3 leikir