Óvænt atvik á Óskarnum hefur ekki aðeins velt upp umræðum um hvernig taka eigi á ofbeldishegðun, óháð því hver á í hlut, heldur velta því sumir fyrir sér hvað mögulega getur skýrt þessa hegðun Will Smith út.
Sem leiðir okkur til þess að rýna aðeins í reiðivandamál.
Að tala um reiðivandamál var eitt sinn eitthvað sem enginn vissi hvað var. Strangt til tekið þekktum við ekki einu sinni orðið „reiðivandamál.“ En með aukinni þekkingu og greiningum, aukinni umræðu um mikilvægi góðra samskipta og vitundavakningu um að andleg heilsa er jafn mikilvæg og líkamleg, erum við smátt og smátt að læra meira um að reiðivandamál er vandamál sem margir kljást við.
En hvaða áhrif hefur það á vinnuna okkar eða samstarfsfélaga, ef við erum að glíma við reiðivandamál?

Hér eru nokkrar birtingamyndir en flestar þeirra eru einnig mælikvarðar á því hvernig samsstarfsfélagar og yfirmenn upplifa þig á vinnustaðnum.
Á litlu landi eins og Ísland er, má líka gera ráð fyrir að erfitt skap, hafi bein áhrif á það hvernig fólk talar um þig eða hvers konar umsagnir þú færð sem starfsmaður.
1. Reiðivandamál hefur áhrif á samskipti
Að eiga erfitt með að hemja reiðina hefur áhrif á dagleg samskipti okkar við annað fólk. Stundum drögum við okkur í hlé en eins verðum við næmari fyrir því að taka eftir öllu sem okkur finnst ekki nógu gott eða neikvætt og einblína á það. Sem aftur hefur áhrif á samskipti og fólk í kringum okkur.
Reiði getur líka leitt til þess að aðrar neikvæðar tilfinningar eiga greiðari aðgang að okkur. Til dæmis afbrýðisemi, vonleysi, þunglyndi, að vera í vörn eða paranoia. Sem auðvitað hefur áhrif á fólk í kringum okkur. Að geta ekki samglaðst samstarfsfélaga er dæmi um hvernig reiði sem leiðir af sér afbrýðisemi hefur áhrif.
Stundum teljum við okkur líka trú um að við þolum ekki einhvern í vinnunni. Þegar í raun málið snýst ekkert um viðkomandi aðila, heldur fyrst og fremst um það hvernig við erum ekki að kljást við þessa reiði innra með okkur.
Þá eru líkur á að vinnufélagar forðist samskipti við okkur einfaldlega vegna þess að fólki finnst ekki gaman að vera með fólki sem oft er pirrað, neikvætt eða reitt.
2. Einbeiting í vinnunni er lakari
Það er til mikils að vinna að takast á við reiðivandamál. Því það hjálpar okkur að einbeita okkur betur að öllu því sem við gerum eða segjum. Að vera alltaf reiður eða neikvæður innra með sér, hefur því bein áhrif á það hvernig við vinnum eða afköstum.
Skortur á einbeitingu dregur ekki aðeins úr frammistöðunni okkar í afköstum, heldur erum við líka líklegri til að taka ekki eins góðar ákvarðanir.
3. Tímastjórnun og forgangsröðun verkefna ekki nógu góð
Að vera of oft eins og hengd upp á þráð gerir það að verkum að við eigum erfitt með að forgangsraða verkefnunum okkar vel og öll tímastjórnunin okkar verður ekki eins góð.
Við erum líklegri til að æða úr einu í annað og enda síðan með að vera á síðustu stundu með að klára verkefni.
Sem ekki aðeins eykur á streitu eða eykur líkurnar á að við vöndum okkur ekki eins vel, heldur líður okkur bara hreinlega ekki eins vel með vinnuna okkar og annars væri.
4. Við sofum ekki nógu vel
Að takast ekki á við reiðivandamál er líklegt til að hafa áhrif á það hvernig við sofum og hvílumst. Sem aftur hefur áhrif á dagsformið okkar í vinnunni. Því vansvefta erum við ekki eins góð í frammistöðu og afköstum og við annars værum.
Stundum er reiði og togstreita innra með okkur ástæða svefnvandamála. Þegar að við förum að takast á við reiðivandamálið, leysist oft úr því vandamáli að vera ekki að sofa nógu vel.
5. Við erum oft þreytt og orkulaus
Þótt reiði sé tilfinning og líðan, tekur hún frá okkur mikla orku. Því við verðum svo upptekin af því að hugsa um það sem er að fara í taugarnar á okkur eða alla þá sem okkur finnst hálf ómögulegir í kringum okkur.
Við erum miklu líklegri til að upplifa viðvarandi spennu, sem aftur gerir það að verkum að á endanum erum við alveg búin á því. Strax eftir vinnu erum við bara orkulaus og getum ekki hugsað okkur að gera neitt mikið meira. Gleði, vellíðan, jákvæðni og þakklæti gefur okkur hins vegar orku.
6. Erum líkleg til að misnota áfengi eða lyf (og missa tökin)
Það er mjög algengt að fólk sem glímir við reiðivandamál misnoti áfengi eða lyf. Að drekka of mikið eða of oft, eða misnota einhver lyf, tekur alltaf sinn toll á endanum.
Þá aukast líkurnar á því að missa alveg tökin á drykkju eða lyfjanotkun þannig að þú endar sem alkhólisti eða lyfjafíkill vegna þess að þú ert ekki að takast á við reiðina og innri líðan.
7. Erum áhugalaus og finnst of sjaldan gaman
Almennt áhugaleysi er eitt af því sem reiðivandamál getur leitt af sér. Þannig getur það aukið á alls kyns tilhlökkun hjá okkur fyrir vinnu og einkalíf, ef við tökumst á við þessa innri reiði.Enda erfitt að hafa mikinn áhuga á einhverju, hlakka til eða vinna að því að ná markmiðum og draumum, ef við erum orkulaus, stressuð, pirruð og finnst allt og allir ómögulegir.
Að vera áhugalaus um vinnuna okkar er síðan líklegt til að hafa áhrif á endanum. Annað hvort að við segjum upp eða okkur verði sagt upp. Sem er synd, því oftar en ekki getur vinna verið mjög skemmtileg ef viðhorfið okkar til hennar er rétt og jákvætt.
Á doktor.is má lesa um einkenni reiðivandamála og góð ráð um hvernig hægt er að takast á við reiðivandamál.