Davíð Kristján var í byrjunarliði Kalmar en var tekinn af velli í hálfleik, en Ari Freyr hóf leik á bekknum hjá Norrköping og kom inn sem varamaður þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka.
Gestirnir í Norrköping fóru með 2-0 forystu inn í hálfleikinn áður en varamaðurinn Isak Jansson sem kom inn á fyrir Davíð Kristján minnkaði muninn fyrir Kalmar eftir klukkutíma leik.
Nær komust heimamenn þó ekki og niðurstaðan varð 2-1 útisigur Norrköping. Þetta var fyrsti sigur Ara Freys og félaga á tímabilinu og liðið er nú með fjögur stig eftir fimm leiki, tveimur stigum minna en Kalmar.