Hvernig er tilfinningin eftir leik?
„Hún er bara ótrúlega góð, ótrúlega gott að klára þetta. Mér fannst þetta samt svona óþarflega spennandi á lokametrunum en bara geggjað að klára þetta á heimavelli.”
KA/Þór komst sjö mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks en Valskonur unnu sig inn í leikinn og minnkuðu muninn í aðeins tvö mörk og ekkert gekk hjá heimakonum að skora. Hvað gerðist í sóknarleiknum á þessu tímabili?
„Ég held að við förum bara að sækja alltof mikið inn á miðju, við förum stundum í það, sem við eigum bara ekki að gera, við eigum að keyra á breiddina en ekki fara svona mikið inn á miðju og mér fannst það eiginlega bara vera það, sóknarleikurinn of stirður.”
Aldís var áræðin í sóknarleikum og reið á vaðið þegar mest á þurfti.
„Ég vil taka ábyrgð og svo finnur maður bara svo ógeðslega mikið extra frá þessum áhorfendum, bara troðfullt KA-heimili og það er bara geggjað.”
„Það er bara sturlað, þetta er bara draumur að fá að spila svona fyrir þessa áhorfendur, bara geggjað, og þessir sem eru í trommusveitinni eru bara alltaf tilbúnir, alltaf komnir hérna hálftíma, 40 mínútum fyrir leik, áður en við erum byrjaðar að hita upp og þeir eru bara geggjaðir,” sagði Aldís um stuðningsmenn KA/Þór en mikil læti voru í húsinu löngu fyrir leik og út allan leikinn.
Með sigrinum hefur liðið tryggt sér annan leik í KA-heimilinu eftir að liðið fer suður í Origo höllina og Aldís er ekki síður spennt fyrir næsta heimaleik.
„Verður miklu meiri geðveiki og ég held að það verði miklu fleiri þannig þetta verður bara geggjað.”
Varnarleikur KA/Þór var frábær í fyrri hálfleik þar sem leikmenn Vals komust hvorki lönd né strönd. Var mikið verið að fara yfir varnarfærslur og annað slíkt fyrir leikinn?
„Já við vorum alveg að gera það sko og Martha er hérna bara alveg trítilóð í vörninni og það gefur manni alveg extra kraft að hafa hana svona þannig að já við vorum bara alveg ógeðslega þéttar,” sagði Aldís að lokum.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.