„ABBA-tarar"
Frumsýningin fór fram í gær í Lundúnum í Bretlandi. Þau hafa ekki komið opinberlega fram saman í fjórtán ár. Meðlimirnir koma fram í formi „ABBA-tara" sem eru eins og meðlimirnir litu út árið 1979. Þannig munu þau flytja öll sín vinsælustu lög við undirleik tíu manna hljómsveitar.
Byrja í Lundúnum
Undirbúningur fyrir tónleikana hófst fyrir sex árum og verða þeir haldnir daglega í Lundúnum fram í desember en eftir það fara þeir á flakk til 2026.
ABBA tilkynnti um komu nýrrar plötu, Voyage, og væntanlega tónleika síðasta haust. Fyrsta lagið var frumflutt um allan heim á YouTube í september og fær eflaust að njóta sín á tónleikunum.
„Ekkert ímyndunarafl gæti komið með þá hugmynd að gefa úr nýja plötu eftir fjörutíu ár og enn vera bestu vinir og enn að njóta þess að vera með hvort öðru og hafa algjöra tryggð,“
sagði hljómsveitarmeðlimurinn Ulvaeus í ágúst. Lagið I Still Have Faith in You af plötunni Voyage veitti ABBA fyrstu Grammy tilnefninguna sína.
Íslendingur í undirbúningnum
Hin íslenska Svana Gísladóttir framleiðir tónleikaröðina en hún vann í mörg ár með Johan Renck og nú eru þau að vinna með ABBA en áður höfðu þau unnið meðal annars með stórstjörnunni David Bowie. Svana framleiddi einnig On the Run Tour fyrir Jay-Z og Beyoncé.
Góðar viðtökur
Þó nokkrar stjörnur virðast nú þegar hafa séð sýninguna og hefur hún hlotið frábær meðmæli frá þeim. Söngkonan Kylie Minogue sagði stemninguna hafa verið rafmagnaða og sýningin út úr þessum heimi. Breski grínistinn Matt Lucas var heldur ekki að spara stóru orðin: