Sigur Breiðabliks var einkar þægilegur þó KR-ingar hafi í raun gefið heimamönnum fyrstu tvö mörk leiksins. Breiðablik skoraði hins vegar fjögur og vann leikinn örugglega. Var þetta í sjötta sinn sem Blikar skora fjögur mörk eða meira í einum og sama leiknum á leiktíðinni.
Það sem gerir sigur Breiðabliks sögulegan er að liðið hefur nú unnið 16 deildarleiki í röð á Kópavogsvelli. Bæta þeir þar með 23 ára gamalt met ÍBV en Eyjamenn unnu 15 leiki í röð frá 1997 til 1998.
Alls lék ÍBV 38 deildar- og bikarleiki á Hásteinsvelli frá 1997 til 2000 án þess að tapa leik. Frá þessu er greint á íþróttavef Morgunblaðsins.
Hér að neðan má sjá alla heimaleiki Breiðabliks síðan liðið tapaði 0-2 gegn KR í fyrstu umferð Íslandsmótsins 2021.
Sigrar Breiðabliks á Kópavogsvelli
2021
- Breiðablik 4-0 Keflavík
- Breiðablik 4-0 Stjarnan
- Breiðablik 2-0 Fylkir
- Breiðablik 4-0 FH
- Breiðablik 4-0 Leiknir Reykjavík
- Breiðablik 4-0 Víkingur
- Breiðablik 2-1 ÍA
- Breiðablik 2-0 KA
- Breiðablik 3-0 Valur
- Breiðablik 3-0 HK
10 sigrar, markatala: 32-1.
2022
- Breiðablik 4-1 Keflavík
- Breiðablik 3-0 FH
- Breiðablik 3-2 Stjarnan
- Breiðablik 4-3 Fram
- Breiðablik 4-1 KA
- Breiðablik 4-0 KR
6 sigrar, markatala: 22-7.
Samtals 16 sigrar í röð, markatala: 54-8.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.