Í raun á Liverpool þrjá fulltrúa þar sem Sadio Mane spilaði allt síðasta tímabil með Liverpool áður en hann skipti yfir til Bayern München.
Riyad Mahrez er á meðal topp tíu en hann vann ensku úrvalsdeildina með Manchester City. Á listanum má einnig finna Sadio Mane, Mohamed Salah og Naby Keita en þeir unnu enska deildarbikarinn og enska FA bikarinn með Liverpool. Salah var markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili ásamt Son Heung-min frá Suður-Kóreu.
Einnig eru tilnefndir Achraf Hakimi, sem vann frönsku deildina með PSG, og Vincent Aboubakar, sem varð fyrsti leikmaðurinn í hálfa öld til að skora átta mörk í Afríkukeppninni. Listann í heild má sjá hér að neðan.
Tekið er mið af frammistöðum leikmanna frá september 2021 til júní 2022. Sigurvegari verður tilkynntur þann 21. júlí næstkomandi.
Tveir Kamerúnar eru á meðal topp tíu á meðan Senegal á þrjá fulltrúa en Senegal varð Afríkumeistari í upphafi þessa árs.
- Mohamed Salah, leikmaður Liverpool og Egyptalands
- Riyad Mahrez, leikmaður Manchester City og Alsír
- Sadio Mane, leikmaður Bayern München og Senegal
- Achraf Hakimi, leikmaður PSG og Marokkó
- Kalidou Koulibaly, leikmaður Napoli og Senegal
- Naby Keita, leikmaður Liverpool og Gíneu
- Vincent Aboubakar, leikmaður Al Nassr og Kamerún
- Edouard Mendy, leikmaður Chelsea og Senegal
- Karl Toko Ekambi, leikmaður Lyon og Kamerún
- Sebastian Haller, leikmaður Dortmund og Fílabeinsstrandarinnar